Hugmyndir um flugvöll á Álftanesi eru ekki nýjar af nálinni en Ívar Örn Guðmundsson arkitekt telur að þar sé mjög álitlegt stæði fyrir alþjóðaflugvöll. Ívar Örn mun reifa þessar hugmyndir í þætti Björns Jóns Bragasonar Sögu & samfélagi á Hringbraut í kvöld kl. 21.30.
Ívar Örn mun þar einnig fjalla um hugmyndir sínar um gerbreytta stjórnsýslu höfuðborgarsvæðisins, þannig að það verði sett undir stjórn eins yfirborgarstjóra, en síðan muni íbúar velja sér stjórn í um það bil ellefu hverfahlutum. Þetta yrði þá ekki ósvipað því fyrirkomulagi sem er við lýði í stórborgum nágrannalandanna.
Þetta og fleira í Sögu & samfélagi í kvöld.