Al­ræmdur svika­hrappur sagður vera á Ís­landi

Al­ræmdi svika­hrappurinn Simon Hayut sem öðlast hefur heims­frægð í heimildar­myndinni Tinder Swindler virðist vera staddur á Ís­landi ef marka má skjá­skot sem gengur nú um á milli ís­lenskra kvenna á sam­fé­lags­miðlum.

Frétta­blaðið greindi fyrst frá málinu. Á skjá­skotunum skrifar Simon, sem svikið hefur fé úr tugum kvenna víðs­vegar um Evrópu, að hann hafi leigt allt Reykja­vík Edition Hotel.

Hann sé staddur hér á landi til að taka bensín á einka­þotuna sína. Ljóst er að ef satt er að um er að ræða svika­hrappinn er um að ræða hel­bert bull.

Eins og fram kemur ífrétt Frétta­blaðsins hefur Simon þessi setið inni fyrir svik sín. Hann er nú hins­vegar frjáls maður en hann kynnist konum á Tinder, fær þær til að verða ást­fangnar af sér áður en hann biður þær um fé vegna meintra ó­vina sinna.

Simon hefur meðal annars þóst vera sonur demanta­auð­jöfurs, leyni­þjónustu­maður og flug­maður. Talið er að hann hafi svikið milljónir út úr sak­lausum konum.

Frétt Fréttablaðsins þar sem má sjá skjáskotin.