Almannatenglarnir Karl Pétur Jónsson og Stefán Hrafn Hagalín eru ekki par sáttir við að Helgi Seljan alhæfi um störf almannatengla þegar hann fór yfir mikið af klúðri sem skrifaðist beint á almannatengla.
Helgi var að fagna því að N1 Rafmagn hefði ákveðið að endurgreiða alla ofgreidda reikninga einum og hálfum mánuði eftir að Stundin fjallaði fyrst um málið.
„Viðbrögðin eru hefðbundinn skætingur og strútskýringar í einn og hálfan mánuð, allt í boði rándýrra PR-manna,“ sagði Helgi á Twitter um lok málsins sem voru að fyrirtækið gerði það eina rétta. „Biðst afsökunar og endurgreiðir öllum.“
Karl Pétur var fljótur að koma stétt sinni til varnar: „Sem er það sem góður PR maður hefði ráðlagt.“
Stefán Hrafn, sem sjálfur hefur komið sér í slæmt PR-klandur í störfum sínum á Landspítala, tók undir með honum: „Alltaf verið að tala illa um PR-fólk þegar það hefði sirka allt ráðlagt akkúrat þetta!“
Helgi svaraði þeim fullum hálsi:
„Tökum bara örfá dæmi um nýlegar katastrófur þessarar stéttar. Fullkomnlega heimatilbúin (sjálfbær) mál:
KSÍ
Tölvupóstur ónefnda Landspítalamannsins
Viðtal Sölva
Pottafélagarnir á Þingvöllum
Í öll skiptin voru PR menn við stýrið og í öll skiptin var akkúrat stýrt annað en rétt.“
Stefán sagðist gruna að stjórnendur hefðu verið við stjórnvölinn í öllum þessum málum, fyrir utan sitt mál sem hann eigi skuldlaust.
Helgi svaraði:
„Mér er slétt sama hvað ykkur grunar eða langar. Það liggur fyrir að í þessum málum var ráðgjöfin í raun sjálfstætt vandamál,“ sagði hann og bætti við:
„PR-ið elskar að segjast ráðleggja whole truth/face the music en er síðan oftar en ekki að praktísera þveröfugt. Telja sig vera einhverja Oliviu Pope, en vera svo bara Humphrey Abbleby, eða Tobbi.“
Stefán sagði að það séu oftast annað en almannatenglar, til dæmis lögmenn. Karl bætti svo við:
„Líka mikið talað um hvað PR fólk er dýrt. Man ekki til þess að hafa auðgast stórkostlega á því að vera sjálfstætt starfandi PR maður. Tímagjaldið innan við helmingur af því sem sæmilegur lögmaður rukkar.“