Alma D. Möller landlæknir þekkir af eigin raun hversu mikil áhrif mygla getur haft á fólk. Alma er gestur Kveiks á RÚV í kvöld en þar verður meðal annars fjallað um rakaskemmdir og myglu. RÚV hefur birt brot úr þættinum á vef sínum.
Það var fyrir rúmum áratug að Alma byrjaði að vinna á gjörgæsludeild Landspítalans. Ekki leið á löngu þar til pestar fóru að gera vart við sig hjá henni en áður hafði Alma ávallt verið heilsuhraust og full af orku.
Í viðtalinu segir Alma að hún hafi fengið tíðar ennis- og kinnbeinsholusýkingar sem urðu til þess að hún fór í skurðaðgerð. Leið henni oft eins og hún væri að fá flensu.
„Ég skildi ekkert í þessu og tengdi þetta ekkert vinnustaðnum fyrst.“
Alma fór að leggja tvo og tvo saman þegar hún var búin að vera fjarri vinnustaðnum í ákveðinn tíma, meðal annars vegna sumarleyfa. Eftir að hafa snúið aftur til starfa var hún full af orku en með tímanum fjaraði starfsorkan út.
Það var svo ekki fyrr en síðar að í ljós kom að rakaskemmdir voru í húsnæðinu og var það staðfest með sýnatöku að um myglu væri að ræða. Þá höfðu fleiri starfsmenn lýst svipuðum einkennum.