Alma ósátt: „Sagði maðurinn þetta? – Hroki og vanþekking

„Sagði maðurinn þetta? Þetta lýsir ótrúlegum hroka og vanþekkingu á eigin starfsemi, spilakössunum,“ segir Alma Hafsteinsdóttir, formaður samtaka áhugafólks um spilafíkn.

Alma gerir viðtal RÚV við Þór Þorsteinsson, formann Landsbjargar, að umtalsefni á Facebook-síðu sinni. Samtökin hafa að undanförnu staðið fyrir átakinu Lokum.is en þar er ljósi varpað á alvarleika spilafíknar, meðal annars með reynslusögum spilafíkla og aðstandenda þeirra. Hvetja samtökin til þess að spilasölum verði lokað fyrir fullt og allt.

Í viðtalinu sagðist Þór á margan hátt geta tekið undir málstað samtakanna en sagði erfitt að mæta tilfinningaherferð með rökum. Landsbjörg og Rauði krossinn reka Íslandsspil en auk þess rekur Happdrætti Háskóla Íslands spilakassa á Íslandi.

Þór sagði að Landsbjörg sæktist ekki sérstaklega eftir því að reka spilakassa en samt sem áður þarfnist samtökin fjármagns til að sinna sínum verkefnum. Sagði hann að stjórnvöld þyrftu að breyta leikreglum og Landsbjörg vilji ekki peninga frá þeim sem eru haldnir spilafíkn. „Samkeppni er á markaðnum og ef Landsbjörg drægi úr sinni aðkomu yrðu samtökin undir í þeirri baráttu,“ sagði hann.

Alma er ósátt við þessa afstöðu formanns Landsbjargar og segir á Facebook-síðu sinni:

„Ég velti fyrir mér hvort formaðurinn tali svona niður til aðalstyrktaraðila Landsbjargar, eða um sjálfboðaliða Landsbjargar þegar þeir lýsa reynslu sinni af störfum fyrir Landsbjörg? Sennilega ekki því́ þeir myndu snarhætta öllum stuðningi. Fólk sem hefur val lætur ekki bjóða sér svona framkomu. Hann veit að spilafíklarnir geta ekki hætt að spila í́ spilakössum Landsbjargar og þess vegna leyfir hann sér þetta. Og það er stóra fréttin, Slysavarnafélagið Landsbjörg veit þetta!“