Alma Möller um far­aldurinn: „Ég var ekki búin að sjá þetta fyrir“

Alma D. Möller land­læknir segist ekki hafa grunað að hún myndi nokkurn tímann standa frammi fyrir við­líka ógn og nú er af völdum CO­VID-19 far­aldursins.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í við­tali við Ölmu í sunnu­dags­blaði Morgun­blaðsins. Þar ræðir Alma meðal annars um starf sitt og far­aldurinn sem nú geisar, en sam­kvæmt nýjustu tölum nálgast fjöldi smita hér á landi 600.

„Auð­vitað hefur maður hugsað um heims­far­aldra og ég var komin heim til Ís­lands þegar SARS- far­aldurinn, sem er skyldur þessum, gekk yfir árið 2003. Við fórum þá í vinnu og undir­bjuggum ýmsa hluti sem við búum að núna. Þegar svína­f­lensan gekk yfir vann ég á gjör­gæslunni og hún olli miklu á­lagi en við réðum vel við það. Það komu 170 sjúk­lingar á spítalann og sex­tán á gjör­gæslu en þeir dreifðust vel yfir tíma. Í kjöl­farið var gerð á­ætlun um heims­far­aldur þannig að hún var til. En auð­vitað erum við að læra mikið. Ég var ekki búin að sjá þetta fyrir,“ segir Alma meðal annars í við­talinu.

Alma segir jafn­framt í við­talinu að auð­vitað ríki ó­vissa enda far­aldurinn á mikilli ferð. Það sé á­hyggju­efni þegar ný veira kemur, ekki síst þegar veiran er meira smitandi en inflúensa.

„Við sjáum hvað gerðist í Kína og hvað er að gerast á Norður-Ítalíu. Þetta er mjög al­var­legur far­aldur og veldur gríðar­legu á­lagi á heil­brigðis­kerfið. En ég er mjög sátt við fram­göngu sótt­varna­læknis og er sátt við að­gerðirnar. Það er mikil­vægt að fræða al­menning og mér finnst það hafa gengið vel. Það hjálpar okkur í því hvað við erum fá­menn,“ segir Alma meðal annars í Morgun­blaðinu.