Alma leitar manns

Alma Rut leitar nú að manni sem er fæddur árin 1965 til 1967. Þetta kemur fram á Face­book hópnum Brask og brall en þar birtir hún mynd af Hall­dóri Fannari, blóð­föður mannsins.

„Hæ hæ ég er að leita að manni sem er fæddur 1965-1967.
Mamma hans var í kringum tví­tugt þegar hún átti hann og bjó eða var í Borgar­nesi. Hann ólst ekki upp hjá blóð­for­eldrum,“ skrifar Alma.

„Blóð­faðir hans var úr Dala­sýslu og var í hljóm­sveit. Veit þetta eru ekki miklar upp­lýsingar en ef ein­hver kannast við þá má hinn sami endi­lega senda mér skila­boð
Hjartans hjartans þakkir ♡ Myndir af Hall­dóri Fannari blóð­föður hans.“