Allt varð brjálað þegar Glúmur tefldi síðast við föður sinn

Síðasta skák Glúms Baldvinssonar mun væntanlega líða honum seint úr minni, jafnvel þótt áratugir séu síðan hann tefldi síðast.

Glúmur, sem var oddviti Frjálslynda lýðræðisflokksins, fyrir síðustu þingkosningar rifjar þetta upp í tilefni af heimsmeistaratitli Norðmannsins Magnusar Carlsen á dögunum. Þegar Glúmur tefldi við föður sinn, Jón Baldvin Hannibalsson, ungur að árum er óhætt að segja að allt hafi farið í bál og brand.

„Nú tapaði ég síðast skák tíu ára. En tefldi reyndar ekki eftir þann ósigur gegn föður mínum. Því ég henti taflborðinu sem hann hafði gefið mér í afmælisgjöf og stappaði á því og mölbraut það og rauk inní herbergi og talaði ekki í 24 tíma. Og grenjaði. Og tefldi aldrei aftur,“ segir Glúmur á Facebook og bætir við að það sé reyndar önnur saga.

Markmið hans sé að varpa ljósi á það hver sé í raun og veru besti skákmaður sögunnar. Sjálfur er Glúmur á því að Íslandsvinurinn Bobby Fischer hafi verið sá besti. Margir taka undir með honum á meðan sumir nefna Carlsen og aðrir jafnvel Gary Kasparov.

„Af hverju segi ég Fischer? Jú auðvitað tengslin við Ísland. En einnig í ljósi þess að hann tefldi aldrei aftur og í ljósi þess að Carlsen og Kasparov höfðu meiri upplýsingar á milli handanna en hann þá. Þeir lærðu af honum. Og að lokum vegna þess að hann hafði ekki herskara af sérfræðingum með sér í liði. Hann var einn.“