Allt um manninn sem er leitað að - Hefur mætt til CNN og Fox News

Lög­reglan á Suður­­nesjum leitar lið­­sinnis al­­mennings vegna leitar að 59 ára gömlum banda­rískum ferða­manni, Scott Estill, sem ekkert hefur spurst til síðan í gær.

Scott varð við­skila við eigin­­konu sína á gossvæðinu í Geldinga­­dölum um miðjan dag í gær og hefur leit að honum staðið yfir síðan, án árangurs. Tugir björgunar­sveitar­manna, leitar- og spor­­hundar auk þyrlu Land­helgis­­gæslunnar hafa tekið þátt í leitinni.

Estill er lög­maður sem sér­hæfir sig í skatta­rétti og ráð­gjöf en hann starfaði áður hjá ríkis­skatt­stjóra í Banda­ríkjunum. Hann ætti störfum hjá ríkis­skatt­stjóra árið 1995 og hefur verið sjálf­stætt starfandi sem ráð­gjafi fyrir ein­stak­linga og fyrir­tæki síðan þá.

Á vef­síðu Estill, þar sem hann bíður upp á skattar­að­gjöf og nám­skeið í skatta­skilum, kemur fram að hann hafi meðal annars mætt í við­töl hjá CNN og Fox News.

Í skeyti frá lög­­reglu kemur fram að Scott sé grann­­vaxinn og vel á sig kominn. Birtar eru tvær ljós­­myndir af honum og er önnur þeirra, sem sýnir hann á hlið, tekin í gær. Er hann í um­­ræddum fatnaði sem sést á myndinni.

Þá er hann með DSLR-mynda­­vél með lit­­ríkri hálsól og í brúnum göngu­­skóm. Síðast sást til hans við hraun­kantinn austast í Mera­­dölum þar sem hann varð við­skila við konu sína.

Lög­reglan beinir þeim til­­­mælum til þeirra sem hugsan­­lega muna eftir að hafa séð hann að skoða með­­fylgjandi kort af gossvæðinu sem fylgir færslu lög­­reglu.

„Búið er að út­búa kortið með reitum og viljum við biðja ykkur um að setja X á þann stað þar sem þið sáuð hann, eða láta okkur vita um reit og númer og senda okkur skila­­boð hér á Face­book eða hafa sam­band við 1-1-2. Vin­­sam­­lega deilið sem víðast,“ segir lög­regla í færslu sinni.