Allt sprakk í loft upp þegar Þórdís spurði hvort væri betra

Það má með sanni segja að allt hafi sprungið í loft upp á Facebook hópnum „Gamaldags matur“í gærkvöldi þegar Þórdís nokkuð spurði Íslendinga einfaldlega: „Hvort er betra þorskur eða ýsa?“ Þegar þetta er skrifað hafa yfir 200 manns svarað og enginn er sammála.

Hópurinn hefur vakið mikla athygli en þar keppast Íslendingar við að sýna máltíðir sem þeir hafa eldað í gamaldags stíl, þeim sem Íslendingar hefðu einungis nýtt sér hér áður fyrr.

„Ýsan finnst mér betri, þorskurinn er morandi í ormum,“ segir einn netverja. Hann segist aldrei hafa elskað þorsk og muni ekki gera það. Aðrir eru töluvert hrifnari af þorsknum.

„Þorskur....betri í maga,“ skrifar einn. „Þorskur er mýkri segir annar.“ Þá bætir sá þriðji því við að enginn verði verri þó hann borði soðinn hringorm.

Aðrir segja að eldunaraðferðin skipti máli. „Ef ég ætla að hafa soðinn fisk með smjöri, salti og kartöflum, þá finnst mér ýsan betri. Í alls konar fiskrétti með kryddum, sósum og dóti finnst mér þorskurinn betri.“