Allt brjálað vegna uppsagnar í Búðardal: „Ég hef aldrei heyrt annað eins“

Óhætt er að segja að frásögn sem Rebecca Cathrine Kaad Ostenfeld birti á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi hafi vakið athygli.

Þar sagði Rebecca að henni hafi verið sagt upp störfum eftir tíu ára starf í Krambúðinni í Búðardal. Að sögn Rebeccu var uppsögnin vegna skipulagsbreytinga og þá á verslunarstjórinn að hafa sagt hana tala of mikið við viðskiptavini.

Færsla Rebeccu vakti hörð viðbrögð hjá Dalamönnum og vinum Rebeccu sem eru yfir 2.000 talsins á Facebook.

„Ömurlegt sorglegt, þú varst sú eina af starfsfólkinu sem sýndi einhverja gleði yfir að viðskiptavinir kæmu í búðina,“ segir einn. Annar bætir við: „Jahérna. Ég hef aldrei heyrt annað eins. En takk fyrir frábæra þjónustu.“ Sá þriðji segir: „Ég á bara ekki til orð! Þú ert jákvæðasta og brosmildasta manneskja sem ég hef kynnst og þetta er svo sannarlega þeirra missir.“

Rebecca var í viðtali á Vísi í morgun þar sem hún sagði að mikill fjöldi fólks hefði haft samband við hana í gær eftir að fregnir af uppsögninni bárust. Hún hafi grátið í allan gærdag.

„Mér finnst þetta svo ósanngjarnt, að mínum viðskiptavinum líði illa yfir þessu. Það hringdi einn grátandi áðan og sagði fyrirgefðu að ég hafi talað svona mikið við þig í vinnunni. Ég vona að það sé ekki mér að kenna að þú hafir verið rekin,“ segir Rebecca meðal annars.