Ólafur Kr. Guðmundsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, liggur undir mikilli gagnrýni vegna ummæla sem hann lét falla um mál Dags B. Eggertssonar borgarstjóra.
Eins og greint var frá í gær rannsakar lögregla nú hvort skotið hafi verið úr byssu á bíl fjölskyldu Dags. Eðli vakti málið mikla athygli og fordæmingu flestra, sama hvaða stjórnmálaflokki þeir tilheyra.
Degi var mjög brugðið vegna málsins eins og hann lýsti í viðtali við Vísi í gær.
„Ég held að við verðum aðeins að ræða umræðuna, hörkuna, samskiptin því við erum að horfa uppá alþjóðlega þróun. Alltaf verið að færa línuna og spurning hvenær við sem samfélag tökum þetta til umræðu og segjum þetta gott.“
Ólafur deildi umræddu viðtali á Facebook-síðu sinni og sagði orðrétt: „Byrjaðu á sjálfum þér.... Hér er afleiðing af því sem hampað hefur verið frá svokallaða hruninu 2008. Nú er byltingin komin heim og þú verður bara að taka því Hr. borgarstjóri.“
Færsla Ólafs hefur vakið hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum og eru borgarfulltrúar í hópi þeirra sem hafa fordæmt þau. Í þeim hópi er til dæmis Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, eins og sést hér að neðan.
„Hafi það verið einhverjum vafa undirorpið, þá fordæmi ég þessi dapurlegu ummæli Ólafs. Það hlýtur að vera algjört grundvallaratriði í lýðræðissamfélagi að fólk geti tekið þátt í pólitískri umræðu án þess að öryggi þess sé ógnað eða friðhelgi heimilis og fjölskyldu rofin,“ sagði Hildur meðal annars og bætir við að hún hafi óskað eftir því við Eyþór Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokks, að ummælin verði tekin til umræðu.
Hvað er það sem varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks er að reyna að kalla fram hér ? pic.twitter.com/GGD9MOLYQA
— Heiða Björg (@heidabjorg) January 29, 2021
Þetta er alvarlegt
— Felix Bergsson (@FelixBergsson) January 29, 2021
Í siðuðu ríki væri þessi maður látinn segja af sér.
— Sveinn Þórhallsson (@sveinnthorhalls) January 29, 2021
Fjandinn, í siðuðu ríki hefði þessi maður aldrei hlotið brautargengi í kosningum yfirhöfuð.
Hafi það verið einhverjum vafa undirorpið, þá fordæmi ég þessi dapurlegu ummæli Ólafs. Það hlýtur að vera algjört grundvallaratriði í lýðræðissamfélagi að fólk geti tekið þátt í pólitískri umræðu án þess að öryggi þess sé ógnað eða friðhelgi heimilis og fjölskyldu rofin. https://t.co/aASAI58pOQ
— Hildur Björnsdóttir (@hildurbjoss) January 29, 2021
Ég hef óskað eftir því við oddvita XD að hann taki ummælin upp á fundi forsætisnefndar á eftir.
— Hildur Björnsdóttir (@hildurbjoss) January 29, 2021
Sorglegt viðhorf. Umræðuhefðin í borginni hefur því miður ekki verið upp á marga fiska á þessu kjörtímabili. :(
— Líf Magneudóttir (@lifmagn) January 29, 2021