Allt brjálað í eld­húsinu á Litla-Hrauni: Blóð­nasir, nef­brot og glóðar­auga

Héraðs­dómur Suður­lands hefur dæmt karl­mann í tólf mánaða ó­skil­orðs­bundið fangelsi fyrir líkams­á­rás og hótanir.

Líkams­á­rásin var framin þann 16. maí 2019 í eld­húsinu í sam­eign í fangelsinu að Litla-Hrauni, en á­rásar­maðurinn, fangi á Litla-Hrauni, ógnaði sam­fanga sínum í­trekað með hnífi. Því næst kýldi hann í­trekað í and­lit fangans með þeim af­leiðingum að hann hlaut ó­til­fært nef­brot, mar vinstra megin á and­liti, bólgu í kringum vinstra auga, sprungna neðri vör, blóð­nasir, sár á enni, glóðar­auga beggja vegna og eymsli víða í and­liti, höfði og augum.

Maðurinn var svo á­kærður fyrir hótanir með því að hafa þann 13. Septem­ber 2019, í fangelsinu að Litla-Hrauni, hringt í ó­til­greindan aðila og hótað honum of­beldi ef hann hætti ekki sam­skiptum við á­kveðinn ein­stak­ling.

„Nánar til­tekið fólust hótanirnar í því að slys myndi verða og að á­kærði þekkti aðila sem væru reiðu­búnir til þess að brjóta and­lit fyrir hann. Þá kvaðst á­kærði vita hvar B og nánustu að­stand­endur hans byggju, en framan­greind um­mæli voru til þess fallin að vekja hjá B ótta um eigið líf, heil­brigði og vel­ferð hans og fjöl­skyldu hans.“

Á­rásar­maðurinn játaði sök fyrir dómi en hann á tals­verðan brota­feril að baki. Árið 2017 var hann til dæmis dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir stór­fellda líkams­á­rás. Auk þess að sæta tólf mánaða ó­skil­orðs­bundnu fangelsi var á­rásar­manninum gert að greiða fórnar­lambi á­rásarinnar 500 þúsund krónur í miska­bætur.