Sú ákvörðun forsvarsmanna Session Craft Bar í Bankastræti að bjóða bólusettum viðskiptavinum svokallað „happy hour“-tilboð allan daginn til 20. ágúst hefur mælst misjafnlega fyrir.
Staðurinn birti tilkynningu á Facebook-síðu sinni í gær þar sem fram kom að ekki hefði þurft að loka staðnum þrátt fyrir yfirstandandi fjórðu bylgju kórónuveirufaraldursins. Vel yfir hundrað smit greinast nú á degi hverjum og er það ekki síst góðum gangi bólusetninga að þakka að ekki hefur þurft að grípa til harðari aðgerða innanlands.
Í tilkynningunni kom fram að staðurinn væri þakklátur fyrir þessa stöðu og í ljósi þess væri öllum sem geta sýnt fram á bólusetningu boðið Happy Hour-verð allan daginn til 20. ágúst næstkomandi.
Yfir 50 athugasemdir hafa verið skrifaðar við færsluna og eru þær ekki allar jákvæðar yfir þessu ágæta boði. Á meðan sumir fagna eru aðrir verulega ósáttir og segja að þetta sé dæmi um ákveðna aðskilnaðarhyggju.
„Mun aldrei versla við ykkur og hana nú. Djisus eru þið ekki að grínast! Aðskilnaðarstefnu styð ég aldrei. Skammist ykkar,“ segir til dæmis í einni athugasemd sem fengið hefur tólf „læk“. Aðrar athugasemdir eru í svipuðum dúr og bendir einn á að til séu þeir sem ekki geta þegið bólusetningu. Einn segir að staðurinn gæti fengið á sig kæru.
„Þið farið á fyrsta svarta listann hjá mér. Jafnrétti og val er eitthvað sem flestir hafa unnið hart að! Látið ykkur ekki bregða ef þið fáið á ykkur kæru.“
Segja má að þeir sem skrifað hafa athugasemdir við færsluna skiptist í tvær fylkingar, þeir sem fagna tilboðinu og þeir sem eru andvígir því. Þeir takast svo á og munnhöggvast í umræðum við færsluna.
Leikarinn Vilhelm Neto er í fyrri hópnum og hæstánægður. „Hlakka til að mæta fagnandi og versla við ykkur,“ segir hann á meðan athugasemdir á borð við þessar sjást einnig:
„Þetta er fagmennska“
„Hugsa að Session Craft Bar sé að verða minn uppáhaldsstaður í Reykjavík.“