Framlínuneytandinn Hans Orri Kristjánsson, starfsmaður auglýsingastofunnar Aton.JL, sakar tónlistarmanninn Svavar Knút um fordóma í sinn garð vegna kynhneigðar sinnar.
Eins og Hringbraut greindi frá gagnrýndi Svavar Twitter færslu þar sem spurt var hvar eldra fólk mætti djamma og sagði hann að aldursfordómar ættu að vera litnir jafn alvarlegum augum og fordómar gegn transfólki eða múslimum.
Getur spurt tvítugu dóttur þína hvort hún myndi líta transfólk eða múslima sömu augum á skemmtistöðum eins og fólk sem hefur það eitt til sakar unnið að fylgja gangi náttúrunnar og eldast. <3
— Svavar Knútur 🇺🇦 (@SvavarKnutur) March 19, 2022
Færslan hans Svavars var mjög umdeild og var fólk duglegt að svara, ýmist með því að leiðrétta hann eða gera grín af ummælunum, en Svavar hefur verið duglegur að svara fyrir sig.
„Það er alveg sárt þegar fólki er bent á að það sé ekki eins fordómalaust og það heldur. Svona líður líka kallaköllum þegar þeim er bent á casual kvenfyrirlitningu. Að hlaupa í vörn er eðlilegt fyrsta viðbragð“, segir hann meðal annars.
Hans Orri, eða hanshatign eins og hann kallar sig á Twitter var ekki sáttur við ummælin hans Svavars og svaraði honum.
„Held að þessi maður, sem er einn af þeim fáu sem ég man eftir að hafa sýnt mér fordóma sökum kynhneigðar minnar, ætti að hafa vit á því að hafa sem fæst orð um fordóma.“
Færsluna má sjá hér fyrir neðan.
Held að þessi maður, sem er einn af þeim fáu sem ég man eftir að hafa sýnt mér fordóma sökum kynhneigðar minnar, ætti að hafa vit á því að hafa sem fæst orð um fordóma. pic.twitter.com/QYuSNmGPbc
— Hans Orri (@hanshatign) March 20, 2022