Allt á suðupunkti milli Vilhjálms og Stefáns: „Ég mun aldrei taka aftur mark á þér“

Grunnt er á því góða á milli Vilhjálms Birgissonar, formanns Starfsgreinasambandsins, og Stefáns Ólafssonar, prófessors í félagsfræði, um þessar mundir.

Vilhjálmur reið á vaðið í gær þegar hann skrifaði langan pistil á Facebook þar sem hann sakaði Stefán Ólafsson um ítrekaðar rangfærslur.

Gat ekki orða bundist

„Ég hef ítrekað spurt sjálfan mig að því á liðnum vikum hvort það sé þessi virði að vera að reyna að leiðrétta ítrekaðar rangfærslur og villandi og afveigaleiðandi athugasemdir við kjarasamning sem 18 aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands undirrituðu 3. desember sl. Kjarasamning sem í þokkabót var samþykktur að meðaltali með 86% greiddra atkvæða.“

Vilhjálmur bætti við að niðurstaða hans væri einfaldlega sú að ekki sé hægt að sitja aðgerðalaus og horfa á allar þær rangfærslur sem forsvarsmenn Eflingar, með Stefán Ólafsson prófessor og fræðimann, í broddi fylkingar setja fram.

„En förum yfir staðreyndir og þær stórkostlegu rangfærslur sem forsvarsmenn Eflingar hafa haldið linnulaust uppi. Meðal annars hefur því ítrekað verið haldið fram að nýgerður kjarasamningur SGS kalli á kaupmáttarskerðingu og það þrátt fyrir að kauptaxtar verkafólks í þessum samningi séu að hækka frá 10% upp í 13% eða að meðaltali um 11,28%,“ segir Vilhjálmur og bætir við að það liggi fyrir að Starfsgreinasambandsins, VR og iðnaðarmannafélögin hafi unnið með verðbólguspá Seðlabankans í þessum viðræðum sem gerir ráð fyrir tæplega 6% verðbólgu. Það þýði að kaupmáttaraukning yrði á kauptöxtum SGS um 5,28% ef þessi verðbólguspá gengur eftir.

Aldrei séð jafn grófan blekkingarleik

Vilhjálmur vísaði svo í viðtal sem þeir voru í á Sprengisandi um helgina þar sem hann kveðst hafa spurt Stefán hvers vegna hann héldi þessu fram.

„Svarið frá fræðimanninum var vægast sagt stórundarlegt svo ekki sé fastar að orði kveðið en hann sagði orðrétt: „hins vegar að taka verði rýrnun á kaupmætti, sem hafi orðið á síðari hluta síðasta árs, inn í myndina,“ segir Vilhjálmur og heldur áfram:

„Hérna komum við að einum óheiðarlegasta blekkingarleik sem ég hef orðið vitni að, allt til að senda grafalvarlegar rangfærslur út til almennings og afvegaleiða innihald kjarasamnings SGS. Það sem Stefán fræðimaður gerir ásamt forystu Eflingar er að taka hækkun á vísitölu neysluverðs frá 1. apríl 2022 til desember 2022 sem var hækkun upp á 4,8% og segja að þessa hækkun á vísitölu neysluverðs verði að draga frá 11,28% hækkun á kauptöxtum sem SGS samdi um.“

Vilhjálmur kveðst aldrei hafa séð jafn grófan blekkingarleik áður og vandar Stefáni Ólafssyni ekki kveðjurnar. „Það er umhugsunarefni að fræðimaður eins og Stefán Ólafsson sem ætlast til þess að hann sé tekinn alvarlega skuli voga sér að ástunda svona óheiðarleg vinnubrögð sem standast ekki eina einustu fræðilegu skoðun.“

Stefán reyndi að klóra í bakkann

Stefán mætti sjálfur á Facebook-síðu Vilhjálms þar sem hann reyndi að bera hönd fyrir höfuð sér. Sagði hann að Vilhjálmur færi mjög ranglega með það sem hann sagði um kaupmáttarþróunina. Birti hann gröf og töflur máli sínu til stuðnings.

„Þú þarft að skoða kaupmáttaráhrif hinna nýju kjarasamninga í samhengi við það sem þegar hefur tapast í kaupmætti. Síðan átt þú auðvitað ekki að telja hækkanir vegna Lífskjarasamningsins 1. jan. 2022 og í apríl 2022 vegna hagvaxtarauka inn í þinn kjarasamning. Það er alvöru blekking og reyndar ansi grófleg,“ sagði Stefán meðal annars.

Vilhjálmur stóð fastur á sínu og vandaði Stefáni ekki kveðjurnar.

„Þú mátt dæla út eins mörgum glærum og þú vilt en ég mun aldrei taka aftur mark á þér sem fræðimanni eftir þessar ógeðfelldu rangfærslur og blekkingar. Þú getur reynt að blekkja aðra en þú gerir það ekki hvað mig varðar.“

Umræðurnar allar má sjá undir færslu Vilhjálms hér að neðan.