Allt á suðupunkti eftir ummæli Brynjars um kristni: „Ég held að Jesú Jósefsson geti ekkert hjálpað þér“

Heitar trúar­bragð­a­um­ræður sköpuðust á Face­book vegg Brynjars Níels­sonar um helgina. Ýmsir nafn­togaðir ein­staklingar lögðu orð í belg, þar á meðal Sveinn Andri Sveins­son, lög­maður með meiru.

„Mér fannst heldur sorg­legt að sjá minn gamla kollega og vin, Svein Andra, reyna að upp­hefja sjálfan sig með því að gera lítið úr kristni og kirkju. Það var lítil reisn yfir því og raun aumkunar­vert. Eitt­hvað svo ESB legt, sem er skrítið því kristni er það eina sem lönd Evrópu eiga öll sam­eigin­legt. "Við í Við­reisn erum víð­sýn" er þekktur frasi þar á bæ en er greini­lega merkingar­laus,“ segir Brynjar og ballið er bara rétt að byrja.

„Ég geri enga at­huga­semd við þá skoðun Sveins Andra að að­skilja eigi ríki og kirkju enda hefur það verið gert nánast að fullu. Ef Sveinn Andri væri sam­kvæmur sjálfum sér hefði hann bætt við í færslu sinni að að­skilja ætti ríkið við hluta­fé­lagið í Efsta­leiti. Öfugt við kirkjuna er ekkert stjórnar­skrár­á­kvæði um að okkur sé skylt að styðja og vernda það kompaní“ segir Brynjar enn fremur.

Hann heldur á­fram: „Al­þjóða­hyggju­menn og ESB sinnar eiga það flestir sam­eigin­legt að bera lítið skyn­bragð á manninn og eðli hans. Þess vegna er ESB dauða­dæmt í nú­verandi mynd. Við erum alla ævi í stöðugri glímu við lífið og í þeirri bar­áttu er okkur nauð­syn­legt að sækja styrk í æðri mátt. Þar kemur trúin og bænin sterk inn. Við erum nefni­lega ó­full­komnar til­finninga­verur en ekki rúðu­strikað excelskjal,“ segir Brynjar.

Hann vill að við leitum til trúarinnar á erfiðum stundum: „Með því að ýta kristinni trú úr sam­fé­laginu með kerfis­bundnum hætti erum við ekki bara að grafa undan menningu okkar og arf­leifð heldur að veikja mögu­leika okkar á að takast á við mót­læti í lífinu. Það kemst enginn í gegnum lífið án þess að lenda í ein­hverju and­streymi og mót­læti. Held að við getum ekki enda­laust treyst á læknis- og lyfja­fræðina í þeim efnum.“

„Þú mátt alveg trúa á einhvern almáttugan himnaföður“

Brynjar leggur traust sitt á Jesú: „Þetta eiga allir að vita sem komnir eru til ára sinna, Sveinn Andri, og skiptir ekki máli hvort þeir eru sterkir eða veikir í trúnni. Sam­kvæmt hlut­lægum mæli­kvörðum telst ég örugg­lega veikur í trúnni eða jafn­vel trú­laus. En ég ætla að leggja samt traust mitt á Jesú og fé­laga frekar en Von der Leyen, Macron og Merkel eða aðra í yfir­stéttar elítunni í Brussel,“ segir Brynjar og setur punkt við pistilinn.

Þá blandar Sveinn Andri sér í um­ræðuna: „Það er merki­legt að hvernig þú nærð að tvista saman með skrýtnum hætti and­stöðu mína sem trú­leysingi að hér sé ríkis­kirkja og ríkis­trú að hætti Marteins Mos­dal og Evrópu­sam­bandinu. Þetta er ein­hver þrá­hyggja í þér og ég held að Jesú Jósefs­son geti ekkert hjálpað þér í þeim efnum, enda er hann löngu dauður. Eins og þú ættir að vera, miðað við þitt ó­kristi­lega líferni í gegnum árin.“

Sveinn heldur á­fram: „Þú mátt alveg trúa á ein­hvern al­máttugan himna­föður ef þú vilt, hvort sem þú byggir á elstu bókinni eins og gyðingarnir, miðju bókinni eins og kristnir eða þeirri þriðju, Kóraninn eins og múslimarnir. Til hvers þarftu hins vegar að troða þinni trú á okkur hina og hvers vegna þarf þetta batterí að vera ríkis­rekið?“ segir Sveinn.

Hann segir Evrópu­sam­bandið ekki dautt úr öllum æðum: „Talandi um dauða­dóma, þá hafa menn spáð enda­lokum ESB frá því að það var stofnað. Það lifir enn. Bretar sem sögðu sig úr því þurfa að bíta úr nálinni með þá úr­sögn. Þegar þú drepst í hárri elli, enn að naga þig í handar­bakið yfir því að hafa svissað á listum við Birgi Ár­manns­son, verður ESB á góðu lífi. Og RUV líka,“ segir Sveinn.

Brynjar svarar Sveini en lætur duga að skjóta á hann vegna úr­slitanna í leik Manchester United og Liver­pool í gær. Leikurinn fór 0-5 fyrir Liver­pool en Sveinn er stuðnings­maður Manchester United. „ ég ætla að hlífa þér við frekari niður­lægingu vegna hörmunganna í Manchester­borg í dag,“ segir Brynjar ein­fald­lega.

Sótt að Brynjari úr öllum áttum

Björn Leví Gunnars­son, þing­maður Pírata, blandar sér í um­ræðu á vegg Brynjars, einu sinni sem oftar: „Hvað eru margir milljarðar sem ríkið borgar í kirkjuna á ári? Fjórir, til þess að spara þér ó­makið. Hversu mikill að­skilnaður er á meðan ríkið greiðir kirkjunni 4 milljarða á ári af fjár­lögum?“ spyr Björn.

Brynjar spyr að bragði: „Í hvað fara þessir fjórir milljarðar?“

Björn svarar: „Það veit enginn. Það eru engin skil­yrði bundin þessum út­gjöldum.“

Þá svarar Brynjar: „hvað sem því líður er þetta lægri fjár­hæð en skatt­greið­endur láta RÚV í té. Svo eru til lög um kirkjuna og lagðar á hana skyldur um­fram aðra. Það er líkt og með RÚV“

Inga Auð­björg Straum­land, for­maður Sið­menntar og eigin­kona Helga Hrafns Gunnars­sonar, fyrr­verandi þing­manns Pírata, blandar sér einnig í um­ræðuna: „RÚV er bók­staf­lega út­varp allra lands­manna. Þjóð­kirkjan er hins vegar bara kirkja 62%,“ segir Inga.

Brynjar stendur ekki á svörum: „heldur þú að 2/3 hluti þjóðarinnar hlusti og horfi á RÚV? Tæp­lega og senni­lega bara þeir sem þurfa ekki að greiða nef­skattinn.“

Haf­rún Kristjáns­dóttir, sál­fræðingur og deildar­for­seti í­þrótta­fræði­deildar HR, segir að hún myndi ekki leita til kirkjunnar ef hún þyrfti á hjálp að halda: „Það kann að vera að fullt af folki leiti til kirkjunar þegar eitt­hvað bjátar á en það er líka fullt af fólki sem tengir nakvæm­lega ekkert við það sem þar er boðað og þeim fer veru­lega fjölgandi. Eg sé td ekki af­hverju í ó­sköpunum eg ætti að leita til kirkjunar ef a móti blæs i minu lifi. Það er stór hluti þjoðarinar sem eru svipað þenkjandi og ég þess­vegna finnst mer alveg á­stæða til þess að ræða hvort rétt se að rikið se að borga marga miljarða til kirkjunar. Eg skil þó alveg þetta með menninga­arf­leiðina,“ segir Haf­rún.

Brynjar svarar: „Fólk er alls konar og leitar víða þegar á móti blæs. Sumir leita í trúna og til kirkjunnar og aðrir kannski til sál­fræðings. En mörgum finnst rétt a greiða alla sál­fræði­þjónustu úr ríkis­sjóði en ekkert má fara til kirkjunnar sem sinnir ó­trú­lega miklu starfi fyrir lítinn og oftast engan pening.“

Guðsmenn sameinast

Guð­mundur Andri Thors­son, rit­höfundur og fyrr­verandi þing­maður Sam­fylkingarinnar, lætur sig ekki vanta: „Ég átta mig ekki á þessu and­stæðu­pari - ESB og kristni. Held að sá fé­lags­skapur sé ekki stofnaður kringum trú­mál heldur leik­reglur á markaði.“

Glúmur Bald­vins­son segir himna­föðurinn byggðan á lygi: „Hundrað prósent ó­sam­mála enda hef ég búið í Afríku og víðar um hinn fá­tæka heim þar sem flestir leggja líf sitt í hendur Guðs í hremmingum sínum. Sum­sé Guð á að redda öllu en ekki einka­fram­takið og Fram­sóknar­flokkurinn. Guð er lygi sem og páfinn og biskupinn af Ís­landi og allir hans prestar og þeirra veiði­ár búinn til til að sætta fólk við vond hlut­skipti í þessum heimi í von um himna­ríki í þeim næsta. Guð er eins ­og XD lygi til að halda lýðnum niðri. Af hvurju ætti ríkið að taka þátt í að bera fals­boð­skap út eftir þúsund ár án árangurs. Guð og XD eru ópíum fólksins.“

Brynjar fær hins vegar mikið hrós úr ýmsum áttum. Guðs­mennirnir Geir Jón Þóris­son, Gunnar í Krossinum og séra Vig­fús Bjarni Alberts­son lísa meðal annars allir yfir vel­þóknun sinni á pistli Brynjars. Geir Jón segir Brynjar jafnframt vera banda­mann kristni á Ís­landi – ekki ama­legt það!