Allir starfsmenn Pizzunnar í Núpalind í sóttkví eftir að starfsmaður greindist

Allir starfsmann Pizzunnar í Núpalind í Kópavogi eru komnir í sóttkví eftir að starfsmaður þar greindist með COVID-19 um helgina. Frá þessu er greint á vef Vísis.

Eins og kom fram í morgun greindust tvö kórónuveirusmit hér á landi í gær til viðbótar við þau tvö sem greint var frá um helgina. Öll smitin greindust utan sóttkvíar. Í morgun greindi framkvæmdastjóri Hagkaupa frá því að starfsmaður verslunarinnar í Garðabæ hefði greinst með veiruna.

Hákon Atli Bjarkason, framkvæmdastjóri Pizzunnar, segir við Vísi að starfsmaðurinn hafi verið að vinna á laugardagskvöld. Starfsmennirnir sem þurfa að fara í sóttkví eftir smitið eru 10 talsins og eru þeir allir einkannalausir enn sem komið er.