Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í dag að allir þeir sem koma til landsins frá og með 19. ágúst næstkomandi verði skimaðir tvisvar. Þá verði farþegum gert að sæta fjögurra til fimm daga sóttkví.
Ríkisstjórnin boðaði til blaðamannafundar í morgun vegna skimana á landamærunum en nú liggur fyrir að breytingar verða gerðar eftir aukinn fjölda smita hér á landi. Þetta er sama leið og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir taldi áhrifaríkasta út frá sóttvarnasjónarmiðum.
Þeir farþegar sem koma til landsins frá og með 19. Ágúst þurfa að gangast undir sýnatöku áður en þeir fara í fjögurra til fimm daga sóttkví, eða uns niðurstöður úr seinni sýnatöku berast.
„Þessi ákvörðun er tekin í ljósi þess hvernig veiran hefur þróast á heimsvísu og hér innan lands. Tíðni smita vegna Covid-19 fer vaxandi í nágrannalöndum og um allan heim. Þá er enn verið að kljást við hópsýkingu sem upp hefur komið hér á landi án þess að vitað sé hvernig það afbrigði veirunnar barst inn í landið. Loks liggur fyrir að sóttvarnalæknir telur þessa leið áhrifaríkasta frá sóttvarnasjónarmiði,“ segir í tilkynningu frá stjórnarráðinu.
Undanfarið hafa farþegar frá tilteknum ríkjum verið undanskildir en það verður ekki lengur.
„Í þeim ríkjum er faraldurinn að taka sig upp að nýju og erfitt hefur reynst að hafa eftirlit með því að farþegar hafi í raun dvalið 14 daga í viðkomandi landi. Þá ber öllum að fara í sýnatöku 2 til þess að tryggja betur að smit greinist hjá þeim sem eru nýlega smitaðir. Hingað til hefur sú krafa einungis átt við Íslendinga og þá sem hér eru búsettir eða koma til lengri tíma dvalar.“
Þá kemur fram að reglur um forskráningu farþega verði hertar til þess að tryggja að nauðsynlegar upplýsingar liggi fyrir áður en komið er til landsins.
„Þessi ákvörðun er byggð á þeirri verðmætu reynslu sem fengist hefur við skimun á landamærum frá 15. júní sl. þar sem samstarf heilsugæslunnar, Landspítala og Íslenskrar erfðagreiningar hefur verið lykilatriði undir yfirstjórn sóttvarnalæknis og með fulltingi landamæraeftirlits og almannavarnadeildar lögreglu. Nú eru reglur hertar til að lágmarka enn frekar hættuna á nýjum smitum með öryggi landsmanna og lýðheilsu að leiðarljósi. Með þessu er talið að dregið verði úr líkum á því að frekari raskanir verði á daglegu lífi landsmanna vegna sóttvarnaraðgerða innanlands.“