Allir nefndarmenn hafa tengsl við Sjálfstæðisflokkinn

Þeir fulltrúar sem eiga sæti í nefnd um eftirlit með lögreglu tengjast allir Sjálfstæðisflokknum með einum eða öðrum hætti. Stundin greinir frá þessu og varpar ljósi á umræddar tengingar.

Eins og kunnugt er fjallaði nefndin um háttsemi tveggja lögregluþjóna sem komu að Ásmundarsal að kvöldi Þorláksmessu þar sem grunur lék á að sóttvarnarreglur væru brotnar. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra var sem kunnugt er á meðal gesta í Ásmundarsal umrætt kvöld, en athygli málsins að undanförnu hefur einkum beinst að því sem fram fór á milli umræddra lögregluþjóna.

Í umfjöllun Stundarinnar er bent á að formaðurinn, Skúli Þór Gunnsteinsson, hafi ekki önnur tengsl við Sjálfstæðisflokkinn en þau að hafa verið skipaður af Sigríði Á. Andersen, þáverandi ráðherra flokksins, árið 2017.

Aðrir meðlimir nefndarinnar eru virkir í flokknum, að því er segir í frétt Stundarinnar. Kristín Edwald hæstaréttarlögmaður á sæti í yfirkjörstjórn Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík og Þorbjörg Inga Jónsdóttir hæstaréttarlögmaður á sæti í fjölskyldunefnd í bæjarstjórn Mosfellsbæjar fyrir flokkinn.

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, lagði það til í morgun að nefndin tæki málið til skoðunar, það er úrskurð nefndar um eftirlit með störfum lögreglu. Vill Jón Þór meðal annars varpa ljósi á það hvers vegna nefndin telur að samtal lögregluþjónanna tveggja umrætt Þorláksmessukvöld hafi verið ámælisvert. Þá vildi hann að kannað yrði hvort úrskurður nefndarinnar í málinu standist lög.

Þá hefur Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, sagt að skoðun nefndarinnar færi að líkindum fyrir Persónuvernd. Hann sagði í samtali við Vísi á dögunum að nefndin hafi teygt sig út fyrir sitt svið og hætta væri á að lögreglumenn dragi úr notkun búk- og bílamyndavéla ef einkasamtöl þeirra eru skoðuð við rannsókn mála.