120 kórónuveirusmit greindust hér á landi í gær og virðist faraldurinn vera tiltölulega stöðugur um þessar mundir með tilliti til nýrra smita. Tuttugu og einn einstaklingur er á sjúkrahúsi og fimm í gjörgæslu, en í tilkynningu frá Landspítalanum kemur fram að allir séu þeir í öndunarvél.
Frá upphafi faraldursins hér á landi hafa tæplega 19 þúsund manns greinst með veiruna og 558 lagst inn á sjúkrahús.
Athygli vekur að óbólusettir eru í talsverðum meirihluta þegar kemur að nýjum smitum. Þannig voru 68 þeirra sem greindust í gær óbólusettir en 51 var bólusettir. Einn var ekki bólusettur að fullu.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra tilkynnti í gær að ráðstafanir innanlands haldist óbreyttar næstu tvær vikurnar. Vísaði Willum meðal annars til þeirrar óvissu sem enn ríkir um nýtt afbrigði veirunnar, svokallað Ómikrón-afbrigði.