Allar fréttirnar um Róbert Wessmann horfnar af vef Mannlífs

Glöggur lesandi hafði samband við Hringbraut og benti á að skyndilega væri ekki lengur hægt að lesa þær fjölmörgu fréttir sem skrifaðar hafa verið um Róbert Wessmann á vef Mannlífs.

Athygli vekur að þetta gerist um það leyti sem Halldór Kristmannsson og Róbert Wessmann gerðu með sér sögulegt samkomulag um að ljúka deilumálum þeirra.

Tilkynning barst fjölmiðlum í gær um málið en með samkomulaginu hefur Alvogen fallið frá málsókn gegn Halldóri, sem er fyrrverandi samskiptastjóri fyrirtækisins, og sátt náðst sem felur í sér að deilumálum hans og Róberts er lokið.

Mannlíf hefur undanfarin misseri skrifað mikinn fjölda frétta um Róbert og er óhætt að segja að fæstar hafi þær verið jákvæðar í hans garð.

Félag Róberts, Aztiq, sendi frá sér yfirlýsingu fyrr á þessu ári þar sem Halldór var sakaður um að hafa greitt Mannlífi háar fjárhæðir fyrir níðskrif um Róbert. Kom fram að Róbert hefði tilkynnt meint brot til Fjölmiðlanefndar, Skattrannsóknarstjóra og Neytendastofu.

Þegar nafni Róberts er slegið upp á vef Google og nafninu Mannlíf bætt við sjást margar niðurstöður eldri frétta um Róbert á vef miðilsins. Þegar reynt er að smella á fréttirnar koma hins vegar eftirfarandi skilaboð: „Úbbs ... villa 404 Því miður, en síðan sem þú ert að leita að er ekki til.“

Þetta á til dæmis við þegar smellt er á fréttir með eftirfarandi fyrirsögnum:

Lítilmennska Róberts Wessman

10 spurningar sem Róbert Wessman vildi ekki svara

Róbert Wessman fluttur úr landi: Arnarneshöllin seld á miklum afslætti til samstarfsmanns

Kæru lögmanns Róberts Wessman hafnað: Mannlíf mátti birta tölvupóstinn viðkvæma til Láru og félaga

Róbert Wessman hótar Guðmundi vegna Facebook færslu

Mannlíf ekki brotlegt gegn auðmanninum Róberti Wessman