Alexandra og Gylfi reyndu í fimm ár að eignast barn: „Þetta var ákveðið sjokk“

Alexandra Helga Ívarsdóttir opnar sig um erfiðleikana sem fylgdu baráttu hennar, og eiginmanns hennar, Gylfa Sigurðssonar, við ófrjósemi í viðtali við Fréttablaðið. Þau eignuðust sitt fyrsta barn á dögunum eftir rúmlega fimm ára bið.

Hjónin fengu fréttirnar um að líklega yrði ekki auðvelt fyrir þau að eignast barn þegar þau voru aðeins 26 ára gömul og segir Alexandra það hafa verið ótrúlega skrítið að heyra þær.

„Maður upplifir sig hálf gallaðan, þegar þetta er eitthvað sem flestir í kringum mann hafa ekki þurft að hafa mikið fyrir,“ sagði hún í samtali við Fréttablaðið.

„Við leituðum fyrst til læknis eftir að hafa reynt í sirka ár og fengum þá þær fréttir að líklegast yrði ekki auðvelt fyrir okkur að eignast barn. Við vorum rúmlega 26 ára og lifðum mjög heilsusamlegu lífi og erum bæði hraust svo þetta var ákveðið sjokk.“

Alexandra lýsir fjölda glasameðferða og ófrjósemis herbúða sem hún gekk í gegnum án árangurs. „Í hvert skipti sem eitthvað nýtt er reynt þá hækkar vonarstigið. Fallið og vonbrigðin verða því oft aðeins hærri með hverju skiptinu sem maður fær neikvæða útkomu.“

Hún segir ófrjósemi vera mikinn tilfinningarússíbana sem geti verið einmanalegur staður til að dvelja á. „Ég upplifði mig stundum svolítið einmana í sorginni sem fylgdi þessu enda ekki margir í kringum mann sem skilja líðanina sem fylgir þessu.“

Alexandra viðurkennir að hafa verið frekar lokuð um erfiðleikana í upphafi og ekki talað mikið um þá. „Mér fannst það ákveðinn léttir þegar við sögðum fólkinu í kringum okkur frá stöðunni. Það er erfitt að vera stanslaust að fá spurningar um barneignir þegar þú þráir ekkert heitar en að eignast barn og hefur reynt allt til að uppfylla þann draum.“