Alexandra krefst svara frá Stöð 2 og Ísland í dag vegna viðtals við Hildi Björns

Alexandra Briem, forseti borgarstjórnar og borgarfulltrúi Pírata, hefur sent spurningar á Stöð 2 vegna viðtals við Hildi Björnsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, í kvöld.

Hildur var í viðtali í Íslandi í dag þar sem hún tilkynnti að hún ætlaði að bjóða sig fram í fyrsta sæti á lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor.

„Mig langar að verða borgarstjóri í Reykjavík og það þýðir að ég ætla að bjóða mig fram í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í næstu borgarstjórnarkosningum,“ tilkynnti Hildur í Íslandi í dag á Stöð 2.

Mun hún skora Eyþór Arnalds á hólm.

Var Hildur svo einnig í viðtali í Kastljósi í kvöld.

Alexandra segir á Facebook að Hildur hafi fengið að kynna sig í frekar langan tíma á Stöð 2:

„Jæja Stöð 2 og Ísland í Dag, má eiga von á að fleiri fái svona gott pláss til að kynna sig í aðdraganda prófkjöra og kosninga?“