Alexandra kemur Þórólfi til varnar og ræðst að Hildi: „Ætti að líta sér nær“

Alexandra Briem, forseti borgarstjórnar, kemur Þórólfi Guðnasyni sóttvarnarlækni til varnar og segir að Sjálfstæðismennirnir sem hafi gagnrýnt hann, þá sérstaklega borgarfulltrúinn Hildur Björnsdóttir, ættu að líta sér nær.

Sjálf­stæðis­menn hafa margir lýst yfir á­hyggjum vegna um­mæla Þór­ólfs Guðna­sonar sótt­varnar­læknis á vef Frétta­blaðsins í gær. Þykir fólki hann ganga of langt með því að segjast ekki vilja draga of mikið úr sótt­varnar­ráð­stöfunum innan­lands vegna mögu­legs inflúensu­far­aldurs og RS veirunnar sem gæti herjað á lands­menn í vetur. Þar á meðal er Hildur og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra.

„Ég held að borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins ætti að líta sér nær, í stað þess að ráðast gegn sóttvarnarlækni,“ segir Alexandra á Facebook.

„Auðvitað erum við öll leið á takmörkunum, og auðvitað erum við öll spennt að opna betur á samfélagið. Og okkur finnst öllum óþolandi að mál sem eru ekki beinlínis tengd Covid, eins og jarðhræringar eða árstíðabundnar flensur skuli stjórna því hvort afléttingar séu ráðlegar.“

Málið snúist um spítalann:

„En vandamálið er ekki einhver bölsýni í Þórólfi. Vandamálið er að núna snýst þetta um að stýra álaginu á Landsspítalann, að passa að það álag fari ekki yfir þau mörk að hann geti ekki lengur sinnt fólki,“ segir Alexandra.

„Og það vandamál má rekja til hennar flokksfélaga í ríkisstjórn sem eru helsta andstaðan við því að fjármögnun til spítalans sé aukin. Þau hafa reynt að breiða yfir það með því að tala um aukið fjármagn sem var mest út af húsnæði, eða kjarasamningsbundnum launahækkunum, og reyndu svo að kenna spítalanum um að vera ekki nógu vel rekinn.“

Alexandra segir að það þurfi einfaldlega að ausa fé í heilbrigðiskerfið.

„Við leysum þetta ekki með því að skamma sóttvarnalækni til að ganga gegn sínu faglega mati. Við leysum þetta með því að fjármagna heilbrigðiskerfið svo að því haldist á starfsfólki og geti bætt við, og til að þau geti aukið við getuna til að taka á móti fólki svo að kerfið sé ekki jafn viðkvæmt fyrir áfalli.“