Alexandra fékk óvænt símtal í nótt

Það er stundum sagt að borgarfulltrúar og aðrir kjörnir fulltrúar séu í vinnunni allan sólarhringinn – einnig á næturnar þegar flestir er í ró. Það virðist eiga við í einhverjum tilfellum eins og færsla Alexöndru Briem, borgarfulltrúa Pírata og forseta borgarstjórnar, er til vitnis um.

„Hringdi í mig maður núna áðan til að ræða mál sem hann hafði áhyggjur af, skiptir ekki alveg máli nákvæmlega hvað það var, hafði að gera með leigjanda félagsbústaða í blokkinni hans, en það var hið eðlilegasta símtal að mestu leyti, svona hlutur sem má alveg búast við að þurfa að taka samtal um, fyrir utan eitt. En þegar ég var búin að fara aðeins yfir svona mínar fyrstu hugsanir um málið, benti ég honum á að mér þætti ágætt að fá að ræða þetta á einhverjum öðrum tíma en þrjú um nótt.“

Færslan hefur vakið kátínu margra og hittir einn vinur Alexöndru naglann á höfuðið þegar hann segir: „Lýðræðið sefur aldrei.“