Alexandra Briem, formaður umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar, hefur setið á fundum síðustu daga að reyna komast að því hvers vegna það gekk svona illa að ryðja snjó af götum og göngustígum borgarinnar eftir að snjór féll síðustu helgi.
„Borgarbúar voru skiljanlega ósátt við hversu seint gekk að ryðja götur og göngustíga eftir fannfergi síðustu daga og hef ég verið að vinna í því að upplýsa hvað fór úrskeiðis til þess að bæta þjónustuna,“ skrifar Alexandra í færslu á Facebook.
„Ég boðaði því fund um stöðuna í snjóruðningsmálum til þess að fá betri upplýsingar um hvað hafi farið úrskeiðis við framkvæmdina á dögunum. Á fundinum sem haldinn var í dag kom fram að þó svo allt okkar fólk, og allir verktakar á beinum samningum við okkur hafi farið strax af stað aðfaranótt laugardags, þá voru undirverktakar ekki tilbúnir með þá viðbótarþjónustu sem borgin hefur samið um að fá í aðstæðum sem þessum,“ skrifar Alexandra.
„Það þýddi að það vantaði 26 tæki á göturnar fyrsta sólarhringinn og munar um minna. Við erum að rannsaka af hverju þetta gerðist og hvernig við getum tryggt að það gerist ekki aftur,“ skrifar Alexandra að lokum.
Aðspurð á vef Fréttablaðsins segir Alexandra þetta allt saman til skoðunar hjá borginni. „Þetta er í rauninni mjög skrýtið. Okkar fólk er bara að reyna fá nánari upplýsingar um þetta,“ segir Alexandra.
Hún efast um að það verði fundað meira fyrir jól en býst við að málið verði áfram skoðað milli jól og nýárs.