Alexander er hetja dagsins: Gefur heilli fjöl­skyldu klippingu í hverjum mánuði

„Við eigum að láta gott af okkur leiða og það þarf ekki að vera stórt,“ segir Alexander Kristjáns­son hjá RVK Hair í sam­tali við Frétta­blaðið í dag.

Í fréttinni kemur fram að Alexander ætli sjálfur að gefa heilli fjöl­skyldu ó­keypis klippingu í hverjum mánuði og vill hann endi­lega að fólk hafi sam­band við hann. Leggur hann á­herslu á að engin nöfn verði birt né gjöfin aug­lýst frekar.

„Mig langar til að skora á aðra sem eru af­lögu­færir að gera slíkt hið sama. Þessi vetur verður strembinn fyrir marga en við komumst í gegnum hann saman.“

Alexander segir að mikið hafi verið að gera undan­farna mánuði þrátt fyrir heldur skrýtið á­stand vegna CO­VID-19. Hann segir að kollegar hans á öðrum stofum hafi svipaða sögu að segja.

„Það koma alveg jafn­margir í klippingu og áður. Eina breytingin er sú að við þurfum að huga vel að sótt­vörnum, setja upp grímur í vinnunni og spritta okkur. Á meðan sumir geirar finna ekki fyrir neinum sam­drætti að ráði þá eru aðrir geirar rjúkandi rúst. Mér finnst að í slíkum að­stæðum verði sam­fé­lagið að standa saman og þeim sem eiga þess kost að geta lagt eitt­hvað af mörkum eigi að gefa til baka.“

Veistu um fleiri já­kvæðar fréttir? Endi­lega sendu okkur skila­boð í gegnum Face­book-síðu Hring­brautar.