Aldís segir dómara hafa leynt játningu Bryndísar

Aldís Schram gagnrýnir Guðjón St. Marteinsson héraðsdómara harðlega eftir að hann sýknaði Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og föður Aldísar, af ákæru um kynferðislegt áreitni árið 2018 í garð Carmenar Jóhannsdóttur, í grein sem hún birtir á vef Stundarinnar.

Jón Baldvin neitaði sök og sagði að hann hefði verið leiddur í gildru, þá hafi þetta eyðilagt ævikvöldið. Bryndís Schram, eiginkona hans og móðir Aldísar, hefur staðið með eiginmanni sínum og hafnaði því alfarið fyrir dómi að neitt hafi átt sér stað.

Sjá einnig: Bálreiður Jón Baldvin segir málið hafa eyðilagt ævikvöldið

Aldís segir í greininni á Stundinni að Bryndís hafi játað í bréfi sem dómarinn hafi ekki tekið til greina. „· Hann greinir ekki frá bréfi Bryndísar sem lagt var fram í málinu, þar sem skrifað stendur: „Jón Baldvin ... skilur ekki enn að hann hafi brotið af sér“ og þar með heldur leyndum upplýsingum um játningu Bryndísar á broti ákærða,“ segir Aldís.

Þess í stað hafi Jón Baldvin einmitt verið sýknaður vegna vitnisburðar Bryndísar og vinkonu þeirra Hugrúnar Auðar Jónsdóttur. Aldís telur vitnisburð Hugrúnar heldur ekki trúverðugan. „Það stangast á við vitnisburð ákærða og á hún, að sögn Guðjóns, að hafa „snúið sér að“ brotaþola þegar ákærði káfaði á henni og því getað séð hvað gerst hafði! Sem vekur upp þá spurningu, hvernig er hægt að sjá rass á manneskju sem snýr að manni? Er Hugrún með röntgenaugu?! Þessi langsótta niðurstaða héraðsdómarans er sem sé hvorki rökræn og né skynsamleg, í það minnsta að mínu mati, eða með öðrum orðum hálfvitaleg.“

Þá gagnrýnir hún dómarann fyrir að taka ekki til greina vitni sem Carmen hringdi í þetta kvöld. Einnig að fjalla ekki um í dómnum málsvörn Jóns Baldvins um að kvöldverðurinn hafi verið hluti af samsæri. „…að hún hefði að mínu undirlagi þegið heimboð Bryndísar svo ákærði fengi að káfa á klofi dóttur hennar! Sem einnig var málsvörn Jóns í meiðyrðamáli hans gegn mér, sem hann tapaði…,“ segir Aldís.