Aldís Schram, dóttir Jóns Baldvins Hannibalssonar og Bryndísar Schram, segir ásakanir Agnesar Bragadóttur, fyrrverandi blaðamanns, vera hlægilegar.
Agnes fór mikinn á samfélagsmiðlum fyrr í vikunni og sagði að Aldís hefði reynt að nauðga sér inni á geðdeild.
Sjá einnig: Agnes: „Hún reyndi að nauðga mér á læstri sjúkrastofu“
Aldís hafnar þessu í samtali við Mannlíf: „Á ég að vera orðin lesbía þá? Það er til skrá yfir allar heimsóknir á spítalann og hún er ekki þar. Að ég sé ávænd um nauðgun?! Og það á Agnesi Bragadóttur?! Það er sprenghlægilegt. Því væri ég lesbía – sem allir sem mig þekkja vita að ég er ekki, ætli ég hefði þá ekki valið mér girnilegra eintak en hana, gamla kerlinguna?!“.
Hún segir þetta tilvalið efni í meiðyrðamál: „Þessi staðhæfing, sem sannar ekkert annað en skítlegt innræti Agnesar, er auðvitað helber lygi eða m.ö.o. tilvalið efni í meiðyrðamál.“