Aldís Schram, dóttir Jóns Baldvins Hannibalssonar, birti tilfinningaþrungið ljóð á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi. Ákæra gegn Jóni Baldvin fyrir kynferðislega áreitni var þingfest í gærmorgun og var Aldís viðstödd þingfestinguna eins og fram kom í frétt Fréttablaðsins í gær.
Jón Baldvin er ákærður fyrir kynferðislega áreitni í garð Carmenar Jóhannsdóttur, en meint brot átti sér stað á Spáni sumarið 2018.
Aldís skrifar á Facebook-síðu sína að ljóðið sé til „foreldra sem níðast á eigin barni“. Aldís hefur haldið því fram að faðir hennar hafi brotið gegn henni og fagnaði hún því að hann hefði verið ákærður fyrir kynferðisbrot, eins og kom fram í umfjöllun Mannlífs.
Færsla Aldísar hefur vakið töluverð viðbrögð. Meðal þeirra sem tjá sig undir ljóðinu er Carmen sem kærði Jón Baldvin. „Þau áttu þig aldrei skilið,“ segir hún.
Jón Baldvin hefur staðfastlega neitað öllum sakargiftum en fyrir dómi í gærmorgun kom fram að hann krefjist frávísunar. Byggist krafan á því að íslenskir dómstólar hafi ekki lögsögu í málinu þar sem meint atvik áttu sér stað á Spáni.
Ljóðið sem Aldís birti er hér að neðan:
„PABBI OG MAMMA
Heggur sá er hlífa skyldi,
sá er heita á faðir minn.
Hvar er, pabbi, kærleikur þinn?
Hvað ég annan eiga vildi.
Hlakkar sú er hjálpa skyldi,
sú er heita á móðir mín.
Hvar, ó, mamma, er mildi þín?
Mig hún aldrei eiga vildi.
Hann er sinni dóttur skyldi vera skjól,
skreið um dimmar nætur upp í hennar ból.
Hún er vernd sínu barni skyldi bjóða,
til bjargar sér því kastar fyrir róða.
Og þess í stað að gera betrumbót,
brugga þau mér vélráð og iðrast ei hót,
með ósannindum sverta æru mína,
í því skyni að fá hreinsað sína.
Hver er mín systir? Hver er minn bróðir?
Hver er minn faðir og mín móðir?
Það er hver sá sem hefur kærleikann.
Sá er kýs að elska sannleikann.
Þú mín hjálp ert og haldreipi, Abba,
sem á himnum ég á fyrir pabba.
Þú ert mín hetja, að baki mér bróðir,
bjarg mitt og skjöldur, faðir og móðir.
Aldís Schram“
TIL FORELDRA SEM NÍÐAST Á EIGIN BARNI: PABBI OG MAMMA Heggur sá er hlífa skyldi, sá er heita á faðir minn. Hvar er,...
Posted by Aldís Schram on Miðvikudagur, 16. september 2020