Hallgrímur Helgason segir að ummæli Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra og Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra, frá því í dag um sóttvarnir séu fínt upplegg að endurnýjun á því sem hann kallar ofbeldissamband, ríkisstjórnarsamstarf VG og Sjálfstæðisflokksins.
Eins og alþjóð veit voru boðaðar hertar aðgerðir vegna COVID-19 í dag. Nokkuð ljóst er að ráðherrar ríkisstjórnarinnar voru ekki sammála um aðgerðirnar.
Hallgrímur tjáir sig um málið á Twitter nú í kvöld. „Svandís kemur út af ríkisstjórnarfundi eins og brotin manneskja, með aðgerðir sem Þórólfur dæsir bara yfir, og svo mætir Ásl. Arna til að hrauna yfir þær (& Landspítalann fyrir að vilja ekki peningana úr ríkissjóði!) Aldeilis fínt upplegg að endurnýjun á þessu ofbeldissambandi.“
Svandís kemur út af ríkisstjórnarfundi eins og brotin manneskja, með aðgerðir sem Þórólfur dæsir bara yfir, og svo mætir Ásl. Arna til að hrauna yfir þær (& Landspítalann fyrir að vilja ekki peningana úr ríkissjóði!) Aldeilis fínt upplegg að endurnýjun á þessu ofbeldissambandi.🤨
— Hallgrímur Helgason (@HalgrimHelgason) November 5, 2021