Á­kvörðun um fá­tækt á Ís­landi? „Hvað er eigin­lega í gangi?“

„Á­kvörðun allra þing­manna Vinstri grænna, Fram­sóknar og Sjálf­stæðis­flokksins þegar þeir felldu allir með tölu, til­lögu Sam­fylkingarinnar um hækkun at­vinnu­leysis­bóta síðast­liðið vor, er á­kvörðun um fá­tækt.“

Þetta segir Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylkingarinnar, sem deilir for­síðu­frétt Frétta­blaðsins í morgun. Þar er meðal annars rætt við Vil­borgu Odds­dóttur, fé­lags­ráð­gjafa hjá Hjálpar­starfi kirkjunnar, sem segir að það sé meiri að­sókn nú en undan­farin ár. Hefur um­sóknum um að­stöð fjölgað um rúm 40% á 5 mánuðum.

„Við höfum verið með skóla­töskur fyrir þá sem eiga ekki skóla­tösku en aðal­lega finnum við aukna að­sókn í fötin. Marga vantar úlpur, yfir­hafnir, í­þrótta­föt og sund­föt,“ sagði Vil­borg í Frétta­blaðinu í dag og bætti við að fata­mið­stöð Hjálpar­starfs kirkjunnar hefði neyðst til að loka í kóróna­veirufar­aldrinum. Engar fata­út­hlutanir hafi því verið síðan far­aldurinn hófst. Undir þetta tekur Ás­gerður Jóna Flosa­dóttir, for­maður Fjöl­skyldu­hjálpar Ís­lands, sem segir að mikil að­sókn sé í matar­gjafir og fatnað.

Ágúst Ólafur segir að sú á­kvörðun að hlut­skipti yfir 20 þúsund Ís­lendinga eigi að vera um 240 þúsund krónur á mánuði í at­vinnu­á­standi þar sem engin störf eru að verða til sé nötur­leg pólitík.

„Í þessari frétt frá því í morgun er fjallað um fjöl­skyldur sem hafa ekki efni á fötum fyrir börnin sín og er m.a. vísað í bága stöðu at­vinnu­lausra (sem aldrei hafa verið eins margir).“

Hann vísar í eld­hús­dags­ræðu sína frá því í vor þar sem hann sagði:

„Ís­land getur verið land tæki­færanna. En það er það ekki í dag, a.m.k. ekki fyrir alla. Á sama tíma og Rauði kross Ís­lands rak sér­stakan sjóð sem heitir Sára­fá­tæktar­sjóður birtist blaða­fyrir­sögn hér um að lúxus­bíla­sala á Ís­landi væri á við olíu­ríki. Á sama tíma og 1% ríkustu Ís­lendinganna á meiri eignir en 80% lands­manna, búa 6.000 ís­lensk börn við fá­tækt. Og á sama tíma og einn út­gerðar­maður gengur út með 22 milljarða í vasanum vegna nýtingar á sam­eigin­legri auð­lind þjóðarinnar hafa veiði­leyfa­gjöldin lækkað um helming.“

Ágúst Ólafur spyr í pistlinum sem hann birti á Face­book í morgun: „Hvað er eigin­lega í gangi hjá þing­mönnum þessara þriggja flokka? Sem dæmi er eina skatta­lækkunin sem þessir þing­menn hafa keyrt í gegn á Co­vid tímanum, lækkun skatts hjá fyrir­tækjum “sem kaupa stór skip”. Er ekki kominn tími til að breyta þessu?“

Styrmir Gunnars­son, fyrr­verandi rit­stjóri Morgun­blaðsins, gerir frétt Frétta­blaðsins einnig að um­tals­efni á vef­síðu sinni, Styrmir.is.

„Þessar upp­lýsingar eru al­var­legt um­hugsunar­efni fyrir stjórn­völd. Hér er aug­ljós­lega á ferð ein birtingar­mynd efna­hags­legra af­leiðinga far­aldursins. Hvernig er hægt að tryggja að börn hafi nægi­legan fatnað fyrir veturinn? Að ekki sé talað um mat,“ segir Styrmir og bætir við að ein að­ferð til þess sé að hækka at­vinnu­leysis­bætur, sem deilt hefur verið um að undan­förnu.

„Vonandi verða þessar upp­lýsingar teknar til um­ræðu í stjórn­kerfinu og á Al­þingi. Við sem sam­fé­lag getum ekki verið þekkt fyrir að láta það við­gangast að börn skorti bæði mat og fatnað.“