Eva Hauksdóttir, lögmaður, segir ummæli Dómarafélags Íslands um atlögu að dómsvaldinu koma á óvart. Þetta skrifar hún í skoðanagrein sem birtist á Vísi í gær.
„Fjársýsla ríkisins gerir mistök með þeim afleiðingum að laun upp á 105 milljónir eru ofgreidd. Fjársýslan hyggst krefja 206 hálaunamenn um endurgreiðslu, sem svarar um þriðjungi mánaðarlauna hvers og eins. Það er ekki við öðru að búast en það þeir sem krefja skal um endurgreiðslu mótmæli því,“ segir Eva.
Yfirlýsing stjórnar Dómarafélags Íslands var birt á persónulegu svæði formanns félagsins á Facebook. Í henni segir meðal annars: „Dómarafélag Íslands mótmælir harðlega ólögmætri ákvörðun fjármálaráðherra um einhliða og afturvirka skerðingu á kjörum dómara. Ákvörðunin er í andstöðu við gildandi lög um launakjör dómara og með henni er vegið af rétti borgaranna til réttlátrar málsmeðferðar fyrir sjálfstæðum og óvilhöllum dómstóli.“
Eva segir það vera áhyggjuefni ef stjórn Dómarafélagsins skilji ekki muninn á kjaraskerðingu og leiðréttingu ofgreiddra launa. „Þau laun sem dómarar og aðrir helstu embættismenn landsins hafa fengið greidd síðustu þrjú árin voru ekki í samræmi við löglega ákveðin kjör þeirra, hér er því ekki um kjaraskerðingu að ræða,“ segir hún.
„Stærra áhyggjuefni er þó sú afstaða stjórnarinnar að ákvörðun fjármálaráðherra vegi að rétti borgaranna til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi,“ segir hún og veltir því fyrir sér hvað þetta þýði.
„Á stjórn Dómarafélagsins við að þegar dómarar njóti ekki lengur góðs af mistökum ríkisins aukist hættan á því að þeir dæmi eftir einhverju öðru en lögunum? Já, svo virðist vera,“ segir hún.
„Til að kóróna allt talar stjórnin svo um að þessi "atlaga" framkvæmdavaldsins að dómsvaldinu eigi sér ekki hliðstæðu í íslenskri réttarsögu. Þessi orð lætur stjórnin falla réttri viku eftir að ríkið viðurkennir að hafa brotið gegn fjórtán manns með því hvernig framkvæmdavaldið stóð að skipun dómara í Landsrétt,“ segir hún.
Hún segist hafa meiri áhyggjur af móðursýkislegum viðbrögðum dómarafélagsins við fréttum en því framkvæmdavaldið refsi dómurum með launalækkun. „Við erum að tala um einhverja valdamestu og launahæstu stétt landsins, fólk sem er í betri aðstöðu til að sækja rétt sinn en nokkur annar hópur samfélagsins, segir hún.
Að lokum segir Eva: „Kannski ætti stjórn Dómarafélagsins að taka helgina í það að róa sig áður en hún fer fram á Facebook næst. Í alvöru talað; þú skáldar ekki þennan skít.“