Á heimasíðunni nordjobb.org má finna ýmis störf sem standa til boða á Norðurlöndunum. Störfin eru margvísleg en til að mynda er þar fótboltalið í Færeyjum sem leitar að leikmönnum bæði í kvenna- og karlalandslið fyrir komandi tímabil.
Það er þó ekki það eina sem starfsauglýsingin snýst um en samhliða starfinu sem fótboltamaður býðst umsækjendum einnig fullt starf í fiskvinnslu á svæðinu á meðan leikið er með liðinu.
„Þetta starf hentar þér sem elskar fótbolta, litlar eyjur og fisk,“ segir í auglýsingunni en þar kemur fram að um sé að ræða um það bil 37,5 klukkustunda vinnuviku og eru mánaðarlaunin um 20 þúsund danskar krónur, eða um 420 þúsund íslenskar krónur. Þá útvegar vinnuveitandi húsnæði á niðurgreiddu leiguverði.
Ekki kemur fram hver vinnuveitandinn er eða hvort fyllt hafi verið í starfið en hægt er að sækja um starfið á nordjobb.org.