Ágústi Ólafi hafnað: „Virki­lega dapur­legt fyrir mig“

„Það er því virki­lega dapur­legt fyrir mig að meiri­hluti upp­stillingar­nefndar telji ekki rétt að ég verði í lík­legu þing­sæti fyrir næstu kosningar,“ segir Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylkingarinnar í pistli á Face­book-síðu sinni.

Eins og Frétta­blaðið greindi frá á dögunum var Ágústi Ólafi hafnað í skoðana­könnun sem haldin var meðal fé­laga í Sam­fylkingunni í desember. Að­eins einn karl­maður var í hópi þeirra fimm sem flestir vildu að tækju for­ystu­sæti á listum Reykja­víkur­kjör­dæmanna tveggja í kosningunum næsta haust. Ágúst Ólafur var ekki þar á meðal.

„Sam­fylkingunni hefur gengið mjög vel á kjör­tíma­bilinu, ekki síst í Reykja­vík. Við höfum staðið í upp­byggingar­starfi hjá flokknum og höfum rekið mál­efna­lega en að­halds­ríka stjórnar­and­stöðu á erfiðum tímum. Ég hef tekið virkan þátt í því starfi og tel mig hafa verið mikil­vægan þing­mann fyrir flokkinn á þessu kjör­tíma­bili,“ segir Ágúst sem segir dapur­legt fyrir hann að meiri­hluti upp­stillingar­nefndar telji ekki rétt að hann verði í lík­legu þing­sæti fyrir næstu kosningar.

„Þó gagn­rýna megi ýmis­legt varðandi að­ferðina þá virði ég um leið rétt nefndarinnar til að taka sína á­kvörðun. Ég hef fundið fyrir miklum stuðningi í mínum störfum á Al­þingi og ég tel mig hafa átt þátt í þeirri vel­gengni sem flokkurinn hefur notið. Sam­fylkingin hefur verið að mælast stærsti stjórn­mála­flokkurinn í því kjör­dæmi sem ég leiði. Ég hef látið mig varða mikil­væg mál­efni ekki síst á vett­vangi fjár­mála en einnig þegar kemur að mál­efnum ör­yrkja, aldraðra, menningar, geð­heil­brigðis­mála og dýra­verndar.“

Ágúst segist hafa boðið upp­stillingar­nefnd sátta­til­lögu sem fælist í því að hann færi úr odd­vita­sætinu í kjör­dæminu í nafni ný­liðunar og tæki annað sætið.

„Þeirri til­lögu var hafnað af meiri­hluta upp­stillingar­nefndar. Þessi niður­staða er mér vissu­lega von­brigði en ég horfi stoltur til baka yfir feril minn í stjórn­málum og er ég mjög þakk­látur fyrir að hafa fengið tæki­færi til að vinna að betra sam­fé­lagi.“