Söngkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir gagnrýnir harðlega þá ákvörðun sem Lilja Alfreðsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra, tók árið 2020.
Ágústa Eva gerði tilkynningu Félags íslenskra náttúrufræðinga, sem birtist á mbl.is í gær, að umtalsefni á Facebook-síðu sinni en í henni skoraði félagið á Alþingi, stjórnvöld, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) og skólameistara Fsu um að hysja upp um sig buxurnar og ganga frá yfirflutningunum frá LBHÍ til FSu svo sómi sé að.
Lýsti félagið miklum áhyggjum af ákvörðun Lilju á Þorláksmessu árið 2020 að færa Garðyrkjuskólann að Reykjum við Hveragerði til Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi án þess að ræða flutninginn á Alþingi. Sagði félagið það sæta furðu að nám við Garðyrkjuskólann væri auglýst í gegnum FSu án þess að formlegur samningur liggi fyrir um yfirfærsluna.
Í færslu sinni sagði Ágústa Eva að menntamálaráðherra væri að rífa hjartað úr Hveragerði án umræðu eða umfjöllunar.
„Einstaklega heimskulegt, sérstaklega þegar öll áhersla á að vera að hlúa að þessu þar sem Evrópa horfir á matarskort á allra næstu árum. Hvernig er hægt að ein ríkisstjórn geti tekið allar verstu ákvarðanir sem hugsast geta á örfáum árum? Ég skora á Ásmund að snúa þessari ákvörðun umsvifalaust og hlúa eins vel og hægt er að þessum mikilvæga málaflokki.“