Ágústa Eva og Ólína í hár saman vegna útskúfunar Þóris: „Ykkar partý er búið“

Leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir segir þátttakendum í yfirhylmingu með gerendum að leggja niður vopn og gefast upp, nú séu að eiga sér stað siðaskipti. Vísar hún þar í þátt Kveiks í gær um Þóri Sæmundsson leikara sem segist hvergi geta fengið vinnu eftir fréttaflutning af typpamyndasendingum.

„Hvað ætli séu margir raunverulega þarna úti sem skjálfa inn í sér og upplifa vanmátt gagnvart ægivaldi “útskúfunarstefnunnar ógurlegu” Agalegt alveg þegar það er flautað og ljósin eru kveikt,“ segir hún í pistli á Facebook. „Sumir búnir að gera meira af sér en aðrir, særa og meiða meira en aðrir, þessir aðilar eiga fjölskyldur, börn, foreldra og jafnvel vini. Sumir vinir grunlausir um ógeðfelda hegðanina og aðrir samsekir.“

Hún segir að spilaborgir hrynji reglulega í mannkynssögunni. „Það er ógeðslegt hvað sumir hafa upplifað og ennþá ógeðslegra eru snjóboltaáhrifin, meðleikendur og þáttakendur í yfirhylmingunni. Gefist bara upp kæru þáttakendur. Ljósin eru kveikt og það er bara aumkunarvert að horfa upp á réttlætingarnar og mótsláttinn. Ykkar partý er búið. Leyfið nú næstu kynslóð að halda sitt eigið, með sínum eigin leikreglum. 0 tolerans. Það eru siðaskipti að eiga sér stað, færið ykkur bara.“

Dr. Ólína Þorvarðardóttir, sem hefur skrifað bækur um nornaveiðar á Íslandi, svaraði henni: „Mannfórnir hafa lengi tíðkast meðal mannkyns -' svo er enn.“

Ágústa Eva svaraði fullum hálsi:

„Já greyið gerendurnir. Harkalegt að svipta svona sauðagærunum af þeim. Bönnum spegla líka, það er svo illa gert gagnvart þeim sem geta ekki feisað sjálft sig né gjörðir sínar eða síns fólks.“

Bætti hún við það væri erfitt fyrir venjulegt fólk að átta sig á hvað væri í gangi. „Hversu lengi elsku Ólína hefur það látið viðgangast? Brengluð siðferðiskennt, sködduð… nú eða stundum er hún bara alls ekki til staðar… svoleiðis verður ekki lagað né bætt með yfirklóri, meðaumkun eða krókodílatárum.“

Ólína svaraði:

„Kæra Ágústa Eva, viltu hlífa mér við ásökun um gerendameðvirkni - ég, eins og allar konur að ég held -hef fengið minn skammt af kynferðisáreitni og jafnvel brotum,“ segir hún. „Við þekkjum þetta allar og ekki ætla ég að mæla því bót. Ummæli mín voru almenns eðlis - ekki útfrá einu tilteknu máli sem mér sýnist þú vera að bregðast við. Það er nefnilega margt í þessari umræðu og ýmsu öðru sem er að gerast þessa dagna sem vekur spurningar um mannfórnarstefnu mannkyns.“

Valdimar Örn Flygenring leikari sagði svo við Ágústu:

„Og fíkniefnalaust Ísland líka takk. 0 tolerance.“

Ágústa Eva svaraði honum með háði:

„Þú hefur mjög góða samskiptahæfileika. Hver kenndi þér eiginlega? Sama fólk og kenndi þér í leiklistarskólanum eða bara eldri leikari baksviðs? Reyndar voru alveg snargeggjuð samskipti í þessum skóla og menningu sem er bara rannsóknarefni út af fyrir sig. Ég er ekki hissa á að þú sért hlessa yfir þessu öllu saman.“