Ágústa Eva harðorð: Ekki kenna Bjarna Ben um þó þú getir ekki hitt afa þinn

„Í al­vörunni, af öllu því sem er búið að ganga á síðasta árið þá er þetta Ás­mundar­sals­mál, það mál sem er hvað al­var­legast af öllu?,“ segir Ágústa Eva Er­lends­dóttir, söng- og leik­kona, í býsna harð­orðum pistli á Face­book-síðu sinni sem vakið hefur nokkra at­hygli.

Í pistlinum lætur hún ís­lensku þjóðina heyra það fyrir að velta sér upp úr máli Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra. Bjarni var sem kunnugt er við­staddur gleð­skap í Ás­mundar­sal á Þor­láks­messu sem lög­regla hafði af­skipti af. Hafa margir kallað eftir af­sögn Bjarna sem sjálfur hefur beðist af­sökunar.

„Sí­fellt kemur smá­borgarinn Ís­lenski sparkandi á ó­vart. Kvartandi undan hári í súpu og vill leggja allt niður og loka, á sam­félgs­miðla­hrífu­fundi. Einn byrjar að sparka og svo koma þeir allir sparkandi, hver öðrum reiðari, yfir hel­vítis hárinu sem HEFÐI getað kyrkt ein­hvern. Í al­vörunni, af öllu því sem er búið að ganga á síðasta árið þá er þetta Ás­mundar­sals­mál, það mál sem er hvað al­var­legast af öllu? Fólk virðist vera að rað­trompa hvert annað hérna í þessum gáfu­manna­sam­fé­lags­sauma­klúbbi. Framtiðin er björt SUF og þið hin, þið vitið hver þið eruð. Á­fram Ís­land.“

Sitt sýnist hverjum um þessi orð Ágústu Evu, margir virðast sam­mála henni en svo eru aðrir sem benda á að allir verði að fylgja reglum. Ein, kona að nafni Berg­lind, bendir á að hún geti ekki hitt 99 ára afa sinn sem liggur fyrir dauðanum. „Þó svo að margt annað í heiminum skipti miklu meira máli en brot Bjarna Ben þá finnst mér fram­koma hans samt sem áður skít­leg,“ bætir við­komandi við.

Ágústa Eva virðist ekki hafa mikla sam­úð með Berg­lindi.

„Búhú. Það eru fleiri tra­gediur, al­var­legri og sorg­legri en sand­kornin undir husinu þinu en að fa ekki að knúsa afa sinn. Sorry en eg hef enga sam­úð með þessu dæmi þó mér þyki vænt um þig Berg­lind. Lífið er tals­vert ljótara og mis­tökin mun al­var­legri en þessi meintu mis­tök bjarna að vera of lengi á sölu­sýningu. Get a grip peop­le. Ef þu vilt kenna ein­hverjum um að geta ekki hitt afa þinn þa eru þeir fjöl­margir, og is­lenskir og frægir i þokka­bót en Bjarni er ekki einn af þeim.“

Önnur kona, Guð­rún að nafni, segir þetta hafa verið ömur­lega jóla­kveðju frá öllum sem við­staddir voru í Ás­mundar­sal á Þor­láks­messu. Fátt hafi gert hana jafn leiða og þetta at­vik og bendir hún á að hún hafi hugsað um fólkið í fjöl­skyldu sinni sem hún hefur ekki getað hitt, vini sem hafa misst vinnuna eða fyrir­tækin sín og þá sem hafa verið at­vinnu­lausir lengi.

Ágústa Eva svarar Guð­rúnu svona:

„Ein­mitt, ís­lensku jólin! Það er nottla það heilagasta og það að grenja yfir þvi að hitta ekki ættingja sem hafa það himneskt og reyndar lika við sjálf miðað við allt og allt. Við höfum rauða­krossinn... hvað er það versta sem getur gerst eða hefur gerst i þessu öllu saman? Eru is­lensku jolin og skæp­session i lelegum gæðum það dýpsta sem við förum? Hver nk er mæli­kvarðinn? Á Bjarni Ben að vera fyrir­mynd þess sem ALLIR eiga að gera? Er hann ráðinn til þess? Eruð þið alltaf með hreinar grimur? Sprittiði posann eftir hverja notkun? Hver sagði fyrir ör­fáum mánuðum að grímur væru gagns­lausar? Var það Bjarni? Nei það var sótt­varnar­læknir. Eigum við að rekja ein­hver dauðs­föll, at­vinnu­leysi og gjald­þrotum til þessara umm­mæla eða annara á­kvarðanna sem voru teknar eða ekki teknar?? Eða eigum við ekki bara að láta Bjarna segja af sér af­þvi að hann var í partý? Meikar þetta virki­lega sens fyrir ykkur??“

Ágústa Eva virðist hafa komið ein­hverjum vinum sínum á ó­vart með skrifum sínum og veltir minnst einn því fyrir sér hvort Face­book-síða hennar hafi verið hökkuð.

„Ást og friður til þín elska, en mér finnst þú alveg rosa­lega harð­orð við fólk sem rétti­lega finnst brotið á sér af manninum sem býr til reglurnar og fer svo ekki eftir þeim sjálfur, af því að hann á boltann og hann ræður,“ segir við­komandi en færslu Ágústu og um­ræðurnar undir henni má sjá hér að neðan.

Sífellt kemur smáborgarinn Íslenski sparkandi á óvart. Kvartandi undan hári í súpu og vill leggja allt niður og loka,...

Posted by Erlendsdóttir Ágústa Eva on Sunnudagur, 27. desember 2020