Ágústa Eva fór hamförum á Austurvelli: „Við erum að reiða fram börnin okkar“

Leik- og söngkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir hefur verið áberandi í mótmælum gegn bólusetningum barna við Covid-19 á Austurvelli. Fjallað var um mótmælin í kvöldfréttum Stöðvar 2en þar sagði Ágústa Eva, sem er líklega þekktust fyrir túlkun sína á Silvíu Nótt og Línu Langsokk, að aðgerðir stjórnvalda væru ofbeldi.

Fór hún svo hamförum í ræðu sinni:

„Eigum við að segja húrra fyrir frelsi? Hvað viljum við? Viljum við sannleika? Gegnsæi? Burt með ofbeldiskúgara. Okkur er kennt í skóla að hlýða. En við ætlum ekki að hlýða. Það er eitt sem þið hin getið gúgglað. Það er að óþekku börnin breyta heiminum. Þau hafa alltaf gert það og gera það enn þá. Gúggliði þetta,“ sagði Ágústa.

„Við erum að reiða fram börnin okkar með rafrænu samþykki.“