Ágúst trúði ekki eigin augum: Fann ómetanlegan fjársjóð uppi á háalofti

Óhætt er að segja að leikstjórinn Ágúst Guðmundsson hafi fundið fjársjóð á heimili sínu fyrir skemmstu, en þá kom í leitirnar kasetta sem var flestum geymd og grafin. Um er að ræða jólalag sem hann og Valgeir Guðjónsson, kenndur við Stuðmenn, sömdu fyrir margt löngu.

Fréttablaðið fjallar um þetta skemmtilega mál í dag.

„Ég fann þetta bara í pappa­kassa uppi á lofti,“ segir Ágúst en lagið ber nafnið Góðan dag og gleði­leg jól!

Ágúst kveðst hafa farið rak­leitt með það í raf­ræna vinnslu og nú hafa þeir fé­lagar í hyggju að gleðja þjóðina á tímum far­aldurs. Hann segir að lagið hafi verið tekið upp 1984 eða 1985 og jafnvel fyrr.

„Þegar ég hlustaði á lagið aftur þá fannst mér þetta nú tals­vert fyndnara en mig minnti. Og það fannst Val­geiri reyndar líka. Þetta kom honum rosa­lega á ó­vart enda var hann alveg búinn að gleyma þessu.“

Nánar má lesa um þetta á vef Fréttablaðsins.