„Þetta er stór iðnaður á Íslandi,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í pistli sem hann birti á Facebook-síðu sinni um helgina.
Í pistlinum skrifaði Ágúst Ólafur um svokallaðar blóðmerar, en þá er blóð tekið úr fylfullum merum. Tilgangurinn er að vinna dýrmætt hormón sem finna má í fylgjunni, en það hefur meðal annars því hlutverki að gegna að örva starfsemi eggjastokka. Hormónið er einna helst notað í svínarækt.
Ágúst Ólafur rifjaði upp að hann hefði tekið málið upp á Alþingi fyrr á þessu ári og þá kom í ljós að um 5.000 íslenskrar hryssur væru notaðar í þessum tilgangi. Benti hann á að taka mætti 5 lítra af blóði úr hverri hryssu í 8 skipti á hverju tímabili.
Ágúst var í viðtali um málið í sænsku tímariti á dögunum, en titill greinarinnar er „Hið rauða gull Íslands (s. Islands röda guld). Ágúst deilir viðtalinu sem birtist á vef Sveriges Natur þann 25. nóvember síðastliðinn.
„Þar kemur fram að framleiðslan hafi þrefaldast síðan 2009. Einnig segir þar forsvarsmaður íslenska fyrirtækisins sem stundar þetta hér að „ef varan okkar væri jafndýr og gull værum við gjaldþrota á morgun“. Blaðamaðurinn segir að það var nokkuð erfitt að ræða þessi mál hér á landi enda hálfgert þagnargildi um þessa starfsemi. Eða hvað, vissir þú af þessari starfsemi?,“ spyr þingmaðurinn.
Hann er sjálfur þeirrar skoðunar að það sé virkilega vafasamt að gera merar fylfullar til að hægt sé að auka afköst svínaræktunar.
„Ýmsar aðrar þjóðir hafa bannað þessa framkvæmd og Svíar hættu þessu fyrir hartnær 15 árum. Nú er umræða á Evrópuþinginu að banna innflutning á þessum hormónum frá S-Ameríku eftir 2 milljónir undirskrifta söfnuðust fyrir slíku. Íslenski hesturinn á betra skilið en þessa nýtingu á honum,“ segir hann.
Ágúst Ólafur lagði fram fyrirspurn um málið fyrr á árinu og í svari sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kom fram að hryssublóði hefði verið safnað úr fylfullum hryssum í kjötframleiðslu hér á landi í um 40 ár. Var blóðtaka úr hrossum til framleiðslu afurða stunduð á vegum 95 aðila hér á landi á síðasta ári.
Blóðmerar? Þá er tekið blóð úr óléttum hryssum til að hægt sé að vinna dýrmætt hormón úr þeim sem síðan er gefið svínum....
Posted by Ágúst Ólafur Ágústsson on Sunnudagur, 29. nóvember 2020