Ágúst Ólafur vill að ríkið eignist ráðandi hlut í Icelandair

„Stóra málið í dag er Icelandair. Í gær var ákveðið að fjármagna uppsagnir þess fyrirtækis með allt að 7 milljörðum af skattfé og er sá styrkur í raun helmingur af núverandi markaðsvirði Icelandair sem er núna undir 14 milljörðum kr. Ég velti hins vegar fyrir mér hvort það hefði kannski verið nær að ríkið eignaðist beinlínis eignarhlut í Icelandair samhliða ríkisaðstoðinni?,“ spyr Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í færslu á Facebook.

Greint er frá því í Markaðnum í dag að fyrirtækið sé að leita sér að nýju hlutafé. Upp á vantar á bilinu 22 til 29 milljarða króna, sem eru um 3 prósent af fjárlögum.

„Í ljósi mikilvægi fyrirtækisins velti ég aftur fyrir mér hvort ekki sé rétt að ríkið eignist hreinlega ráðandi hlut í félaginu. Bjargi félaginu svo ég tali nú bara mannamál, en þannig að almenningur eignist eitthvað á móti ríkisstuðningnum,“ segir Ágúst Ólafur. „Með eignarhlut ríkisins í Icelandair væri hægt að verja störf og starfsemi þessa mikilvæga fyrirtækis. Og almenningur hagnast á öflugu félagi, sem getur risið upp á nýjan leik, hratt og vel.“