„Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, verið eins vonsvikinn og dapur með þessa ríkisstjórn,“ sagði Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í umræðum um störf þingsins á Alþingi í morgun.
Í ræðu sinni gerði Ágúst Ólafur heilsíðuauglýsingar sem birtust í dagblöðunum í dag frá Öryrkjabandalagi Íslands. Í þeim birtust ákall til ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur um að virða vilja Alþingis um lögfestingu samnings um réttindi fatlaðs fólks. Alþjóðadagur fatlaðs fólks er einmitt í dag.
„Eftir 10 daga átti ríkisstjórnin nefnilega vera búin að leggja fram frumvarp þess efnis. Það mun ekki gerast. Ekkert svona mál er á dagskrá ríkisstjórnarinnar. Þetta þingmál, sem ég lagði fram, samþykkti þingið fyrir 18 mánuðum,“ sagði Ágúst Ólafur og bætti við að núna neyðist Öryrkjabandalagið til að birta sérstakar heilsíðuauglýsingar um að hér beri ríkisstjórninni að virða löggjafarviljann.
„Við samþykktum öll saman, úr öllum flokkum, mál sem myndi stórbæta réttarstöðu fatlaðs fólks og ríkisstjórninni var falið hið skýra hlutverk að leggja fram frumvarpið innan ákveðins tímaramma. Af hverju er verið að svíkja þetta mál, af öllum? Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, verið eins vonsvikinn og dapur með þessa ríkisstjórn. Þurfa öryrkjar í alvörunni að kaupa heilsíðuauglýsingar til að ná eyrum þessarar ríkisstjórnar?“