Ágúst Ólafur: Kaffibollinn í morgun á 50 þúsund krónur og súrdeigsbrauðið á 100 þúsund

„Í­myndið ykkur ef kaffi­bollinn ykkar hefði kostað 50.000 krónur í morgun, súr­deigs­brauðið um 100.000 kall eða nýi bíllinn ykkar um hálfan milljarð króna. Þetta er ekki mjög fjar­lægt því þetta væri raunin ef við hefðum ekki tekið tvö 0 af krónunni.“

Þetta sagði Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylkingarinnar, í um­ræðum um störf þingsins á Al­þingi í dag. Ágúst Ólafur talaði þar um ís­lensku krónuna en hann er mjög fylgjandi því að taka upp annan gjald­miðil. Spurði hann hvort ekki væri full­reynt með hinn al­ís­lenska gjald­miðil.

„Nú eru um 100 ár liðin síðan á­kveðið var að skrá gengi ís­lensku krónunnar sér­stak­lega. Fram til ársins 1920 var ís­lenska krónan á pari við dönsku krónuna en núna er gengi dönsku krónunnar um 21 ís­lensk króna. En tökum við til­lit til mynt­breytingarinnar 1981 er gengi dönsku krónunnar 2.100 gamlar ís­lenskar krónur. Verð­gildi ís­lensku krónunnar gagn­vart hinni dönsku er því að­eins 0,05% af því sem það var árið 1920 sem jafn­gildir rýrnun upp á 99,95% á þessu 100 ára tíma­bili.“

Ágúst Ólafur sagði að í ver­öldinni allri væri vand­fundið það fyrir­bæri sem hefur rýrnað jafn mikið og ís­lenska krónan. Sumir héldu því fram að gengis­fellingar – en með þeim rýrnar virði krónunnar – séu gott hag­stjórnar­tæki en þetta sama fólk gleymi því að gengis­fellingar gerast alltaf á kostnað al­mennings.

„Með gengis­fellingu eru verð­mæti færð frá al­menningi þar sem krónur venju­legs fólks verða minna virði og inn­fluttar vörur hækka í verði og verð­mætin eru færð til út­flutnings­greina, svo sem út­gerðarinnar, og með lækkun krónunnar hækkar verð­bólgan. Á síðasta ári var krónan í hópi þeirra gjald­miðla sem veiktust hvað mest. Við erum þar í hópi með Kirgistan, Mó­sambík og Georgíu.“

Ágúst Ólafur endaði erindi sitt á eftir­farandi spurningu: „Er þetta ekki full­reynt með ís­lensku krónuna? Er 100 ára sorgar­saga ekki nóg og eigum við ekki að leyfa ís­lensku krónunni að sofna sínum þyrni­rósar­svefni?“