Ágúst Ólafur gefur fall­ein­kunn: „Í hvaða heimi telur fólk að það dugi?“

Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylkingairn­nar, segir að fjár­laga­frum­varpið sem kynnt var í morgun sé ekki upp á marga fiska. Hann raunar gefur því fall­ein­kunn og segir að það sé ekki að sjá að ríkis­stjórnin átti sig á megin­vandanum sem er at­vinnu­leysið.

Þá segir Ágúst Ólafur að nær ekkert sé gert til að fjölga störfum eða létta undir at­vinnu­lausum og fjöl­skyldum þeirra. Ágúst hefur tekið saman tíu at­riði sem vöktu at­hygli hans í frum­varpinu, en niður­stöðuna birtir hann á Face­book-síðu sinni:

  1. Í fyrsta lagi stendur ekki til að hækka grunat­vinnu­leysis­bætur og því eru tug­þúsundir Ís­lendinga dæmdir til að lifa á 240 þús á kr. á mánuði, sem er upp­hæð sem enginn ráð­herra myndi treysta sér til að lifa á.
  2. Í öðru lagi eru fjár­festingar í nýjum störfum allt of litlar, bæði í einka­geiranum og hjá hinu opin­bera og at­vinnu­leysið verður því á­fram hátt. Vegna hægrikreddu Sjálf­stæðis­manna er ekkert átak í að fjölga opin­berum störfum þar sem þeirra er þörf eins og í hjúkrun, sál­fræði­þjónustu, skólunum, lög­gæslu og þess háttar inn­viða­störfum. Allt fjár­festingar- og upp­byggingar­á­tak ríkis­stjórnarinnar á næsta ári er undir 3% af fjár­lögum. Í hvaða heimi telur fólk að það dugi þegar kemur að dýpstu kreppu Ís­lands í 100 ár?
  3. Í þriðja lagi sýnist mér að boðaður sé sárs­auka­fullur en ó­út­færður niður­skurður eftir rúm 2 ár upp á tæp­lega 40 milljarða ár­lega. Það gerist á kostnað þeirra sem njóta opin­berrar þjónustu hvort sem það eru eldri borgarar, ör­yrkjar, sjúk­lingar, náms­menn og fá­tækt fólk.
  4. Í fjórða lagi er enn­þá sýnt al­gjört skilnings­leysi gagn­vart litlum fyrir­tækjum en ekki verður ráðist í frekari lækkun t.d. tryggingar­gjalds gagn­vart þeim eins og væri kær­komið. Samt eru haldið í fyrir­huguð á­form að breyta skatt­lagningu á fjár­magns­tekju­skatti þannig að fjár­magns­eig­endur einir hópa, verða varðir sér­stak­lega fyrir verð­bólgu. Þá vekur að það at­hygli að veiði­leyfa­gjöld halda á­fram að lækka og eru orðin á­líka há og út­varps­gjaldið. Kannski kemur það ekki á ó­vart hjá þessari ríkis­stjórn.
  5. Þá vantar miklu meiri kraft í ný­sköpunar en aukningin í ný­sköpun milli ára eru 0,5% af fjár­lögunum.
  6. Sé litið til næstu 5 ára verður meira að segja lækkun til menningar, lista og í­þrótta­starfs sem er köld tuska framan í þessa geira.
  7. Fram­halds­skólar fá nánast sömu upp­hæð næstu fimm árin og nær hin marg­lofaða mennta­sókn ekki til þeirra af ein­hverjum á­stæðum.
  8. Þá er ég sann­færður að við gætum sett miklu meira fjár­muni í að flýta hér arð­bærum opin­berum fram­kvæmdum til að auka eftir­spurn í sam­fé­laginu en sam­göngu­mál fá mikla lækkun næstu fimm árin og jöfnunar­sjóður sveitar­fé­laga fær minna á næsta ári en á þessu.
  9. Við­bótin í um­hverfis­mál nemur 0,34% af fjár­lögum og er það nú merki um grænan metnað? Hvar er græna upp­byggingin?
  10. Enn er meira að segja haldið í að­halds­kröfu gagn­vart sjúkra­húsum og skólum á næsta ári. Og það á Co­vid tíma!

Ágúst endar færsluna á þeim orðum að það vanti öll upp­byggingar­á­form. „Og fá þá því fjár­lögin og fjár­mála­á­ætlun fall­ein­kunn í hugum þeirra sem er annt um vinnu og vel­ferð.“

Það er ekki að sjá að ríkisstjórnin átti sig á meginvandanum sem er atvinnuleysið sem er í methæðum og á uppleið. Nær...

Posted by Ágúst Ólafur Ágústsson on Fimmtudagur, 1. október 2020