Yfirlýsing Ágústs Ólafs Ágústssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um að uppstillingarnefnd flokksins hefði hafnað sáttatillögu hans hefur vakið talsverða athygli. Ágúst Ólafur verður ekki í framboði fyrir flokkinn fyrir komandi kosningar í haust.
Sjá einnig: Ágústi Ólafi hafnað: „Virkilega dapurlegt fyrir mig“
Í skoðanakönnun sem haldin var meðal félaga í Samfylkingunni í desember var Ágúst ekki í hópi þeirra fimm sem flestir vildu að tækju forystusæti á listum Reykjavíkurkjördæmanna tveggja. Ágúst Ólafur bauð uppstillingarnefnd sáttatillögu sem féllst í því að hann færi úr oddvitasætinu og tæki annað sætið, en þeirri tillögu var hafnað.
Fjölmargir hafa sent Ágústi Ólafi hlýjar kveðjur í athugasemdum undir færslunni.
„Þetta eru hreinlega mjög vondar fréttir fyrir okkur sem höfum fylgst með störfum þingsins og ósanngjörn gagnvart þér sem ert frábær í því starfi,“ segir Þráinn Bertelsson, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður.
„Það verður sannarlega eftirsjá af þér úr stjórnmálum kæri Ágúst. Dapurleg niðurstaða,“ segir Hrannar B. Arnarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi og fyrrverandi aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur.
„Gangi þér vel kæri Ágúst. Þú hefur staðið þig mjög vel í þínum verkum og getur gengið stoltur frá borði. Gangi þér allt í haginn,“ segir Magnús Orri Schram, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, og Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi ráðherra, tekur í svipaðan streng og segir:
„Þetta þykir mér leitt að heyra. Þú hefur án efa verið einn atkvæðamesti þingmaður flokksins á þessu kjörtímabili og sýnt mikinn styrk í erfiðum málum. Sjálfum þótti mér einstaklega gott að vinna með þér og veit að það verður mikill missir af þér á þingi.“