Ágúst Borgþór Sverrisson, blaðamaður og rithöfundur, hugðist eyða jólunum í góðu yfirlæti á Tenerife með fjölskyldu sinni eins og þúsundir annarra Íslendinga. Ekkert verður þó af ferðinni því hann ákvað í gærkvöldi, á síðustu stundu, að hætta við hana.
Ágúst greinir frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni og segir hann að eitt lítið brot úr textaskrifum Þórólfs Guðnasonar í gær hafi gert útslagið.
Skrif Þórólfs sem Ágúst vitnar til voru svona: „Tvær bólusetningar og fyrra smit af völdum COVID-19 veita sennilega litla vörn gegn Omíkron-afbrigðinu en örvunarskammtur virðist veita umtalsverða vörn. Þó ekki sé ljóst á þessari stundu hversu mikil hún er.“
Ágúst hefur fengið tvær bóluefnasprautur og COVID-19 en hann segir í færslu sinni að hann og eiginkona hans hafi staðið frammi fyrir því að vera nánast óvarin fyrir Omíkron-afbrigði veirunnar. Eins og kunnugt er hefur smitum á Tenerife fjölgað talsvert, rétt eins og á Íslandi, og gripu yfirvöld þar til hertra samkomutakmarkana til að stemma stigu við útbreiðslu veirunnar.
„Við erum bara með tvær sprautur og getum ekki fengið þriðju sprautuna fyrr en í mars. Við fengin covid í apríl og tvær sprautur eftir það. Ég er svo sem ekki hræddur við að fá þá veiru og myndi eflaust standa þau veikindi af mér en ég hef ekki áhuga á að smitast í rándýru fríi á erlendri grundu,“ segir hann.
Til allrar lukku tókst Ágústi að afpanta hótelgistinguna án endurgjalds sem hann segir að hafi verið andstætt reglum hótelsins. Þá var farseðlinum með Icelandair breytt í stóra inneign.
Ágúst dvelur því á Íslandi yfir jólin og slær svo á létta strengi í lok færslunnar. „Hér verður ekkert fjandans jólatré né jólaskraut en gist á Hótel Örk um jólin. Annars er ég bara á leiðinni í ræktina. Hver veit nema ég smitist þar í dag.“