Ágúst Borgþór: „Mér hefur versnað“ – Berst við COVID-19 í einangrun á Rauðarárstíg

Ágúst Borgþór Sverrisson, rithöfundur og fréttastjóri DV, berst nú við COVID-19 í einangrun á sóttvarnarhótelinu við Rauðarárstíg. Hann greindist með veiruna síðastliðinn laugardag og var nokkuð brattur þegar Hringbraut ræddi við hann á mánudag.

Sjá einnig: Ágúst Borgþór COVID-19: Smitaðist líklega á Íslenska barnum

Kórónuveiran sem veldur COVID-19 getur þó verið erfið viðureignar og hefur heilsu Ágústs hrakað nokkuð undanfarna daga.

„Kæru vinir. Ég dreg ekki fjöður yfir það að mér hefur versnað. Niðurgangur, kvef, hiti og fullkomið lystarleysi hafa einkennt síðustu daga,“ segir Ágúst Borgþór í færslu á Facebook-síðu sinni.

Eiginkona hans greindist einnig með COVID-19 eftir að hann greindist og eru þau saman í einangrun með veiruna. Ágúst segir að hún hafi það þokkalegt, sé hitalaus í dag og með matarlyst.

„Ég drekk orkudrykki til að fá einhverja næringu og er kominn með algjört ógeð á þeim. Það eina góða við þetta er að ég mun ganga út héðan grannur eða því sem næst. Ég læt ykkur vita þegar mér fer að batna,“ segir Ágúst og hafa fjölmargir vinir og vandamenn sent honum batakveðjur. Hringbraut gerir slíkt hið sama.

Eins og kom fram í umfjöllun Hringbrautar telur Ágúst að hann hafi smitast af veirunni þegar hann heimsótti íslenska barinn föstudaginn 9. apríl síðastliðinn. Hann fór að finna fyrir einkennum seinni hluta síðustu viku, fékk hita á föstudag og fór í skimun strax á laugardeginum þar sem hann greindist með veiruna.