Agnieszka Ewa Ziólkowska, formaður Eflingar, segir það ekki skipta máli þó hún tali ekki íslensku. Í viðtali við Kjarnann segir Agnieszka að hún skilji íslensku og íslenskukunnátta sín sé ekki og verði ekki vandamál í störfum sínum sem formaður Eflingar.
Hún gefur lítið fyrir umræður á samfélagsmiðlum um að ótækt sé að leiðtogi tugþúsunda verkalýðsfélags tali ekki íslensku.
„Í fyrsta lagi vinna útlendingar á Íslandi flestir í láglaunastörfum – og vinna innan um aðra útlendinga sem einnig tala enga íslensku. Í öðru lagi skil ég íslensku og ég trúi því að það sé mjög mikilvægt að láta íslensk samfélag gera sér grein fyrir því að útlendingar eru hluti af þessu samfélagi,“ segir hún.
„Við verðum að eiga rétt á því að taka þátt í samfélaginu – sama hversu lengi við dveljum hér. Þrátt fyrir að við tölum ekki fullkomna íslensku þá eigum við skilið að vera þátttakendur hér.“